Heilsu­ráð Rúnars vekja at­hygli: „Dreptu mig ekki, nenni ekki að hlusta á þetta“

„Ég er enda­laust að rekast í holl­ráð frá fólki og hef gaman af. Af­hverju geri ég það ekki,“ spyr Rúnar Hroði Geir­munds­son, styrktar­þjálfari og fyrr­verandi at­vinnu­maður í kraft­lyftingum, í pistli á Facebook sem vakið hefur tals­verða at­hygli.

Í honum gefur Rúnar fylgj­endum sínum gagn­leg heilsu­ráð – og það á ó­slípaðri ís­lensku. Rúnar er fyrr­verandi heims­meistari og marg­faldur Evrópu­meistari og veit því hvað hann syngur þegar kemur að æfingum, hugar­fari og matar­æði. Margir taka nýtt ár með trompi og ætla sér stóra hluti í ræktinni og því til­valið að fá smá hvatningu frá Rúnari.

Frétta­blaðið fékk góð­fús­legt leyfi til að endur­birta pistilinn og má lesa hann í heild sinni hér að neðan.

  • Byrjaðu núna, það er enginn tími betri en akkúrat núna. Þú þarft ekki að taka dra­stísk skref, líf­stíls­breytingar eða aðrar rót­tækar breytingar. Við getum all flest farið út að labba ? Það verður að hlaupi og síðan inn í líkams­rækt. Drekkurðu of mikið gos ? allt of mikið súkku­laði ? skyndi­bita ? -Ok, ekki hætta þessu í dag, minnkum þetta, helmingum þetta til að byrja með til dæmis og tröppum okkur niður.
  • Hættu að leita að ein­hverri hel­vítis drauma­lausn, þetta qu­ick fix strax í dag. Þetta er ekki svona ein­falt. Ekki sitja með hann bein­stífann að skoða safa­kúr á netinu. Hann gerir ekki rass­gat. „Þessi safa­kúr er æðis­legur til að hreinsa lifur og nýru og önnur líf­færi” Þessi líf­færi eru þarna til þess að gera ná­kvæm­lega það, ef þau hreinsa sig ekki sjálf og aðra líkams­starf­semi, þá þarftu að fara upp á bráða­mót­töku núna strax. Sonja safa­pressu­drottning græðir bara á þér, ekki hjálpa henni við það. Eina det­ox sem virkar er að fasta.
  • Það er ekki hægt að taka neina æfingu eða matar­æði til þess að taka sér­stak­lega hliðar­spikið, ekkert frekar en að ætla sér að drekka vatn neðst úr glasinu fyrst, þetta bara kemur jafnt. Hættu að spyrja mig að þessu. Það er heldur ekki hægt að kaupa eitt­hvað djöfulsins krem eða belti til að brenna þetta fyrst.
  • Gefðu skít í matar kúra, þetta er peninga­plokk og þú munt bara gefast upp, ég skammast mín ekkert við að segja það við þig, þið gefist öll upp, eðli­lega, þetta er ó­geðs­lega leiði­legt. Ein­faldast að setja þetta svona upp: Kal­oríur inn vs Kal­oríur út. Ef þú étur 4000 kcal yfir daginn en brennir bara 3700 þá er það nokkuð aug­ljóst að þú grennist ekki. Ps. Það er ekkert ó­hollara að borða á kvöldin frekar en á daginn. Hins vegar er aug­ljóst að á kvöldin förum við yfir kal­oríu þakið okkar, því það er ein­fald­lega komið að enda dags.

  • Á ég að borða morgun­mat eða fasta????” -Ein­falt, þarna er tvennt í boði. Drekk­hladdu þig af próteini í morgun­mat eða slepptu honum al­farið, ég er mikið meiri að­dáandi þess að sleppa morgun­mat. “En morgun­maturinn er mikil­vægasta mál­tíð dagsins?” -Nei hún er það ekki, það hentar bara morgun­korn­a­kyn­slóðinni að segja þér það til að selja þér það.
  • Prótein? verð ég ekki of massaður/mössuð og þyngist” -Nei, þegiðu maður, ég nenni ekki að hlusta á þetta lengur. Prótein er frá­bær orku­gjafi og við verðum mikið meira södd og stelumst ekki í skít á meðan.
  • Fastaðu í 16-18 tíma alla daga, allt árið, það er ein­faldasta ráð sem ég get gefið með matar­æði. Við erum gerð til þess að fasta, ekki borða. Borðaðu svo venju­legan and­skotans mat þess á milli. Langar þig í pítsu ? éttu hana bara, ekki borða hana aftur á morgun og hinn. Það er ekki séns að þú fitnir á einni mál­tíð.
  • Lyftu lóðum, þú verður ekki eins og Gyða Sól með barna­vagninn á lengri hásingu og upp­hækkuðum 38” dekkjum á því að lyfta að­eins. Ein besta brennsla sem við getum komist í er að lyfta. Taktu car­dio líka, heil­brigð blanda af þessu er allt sem þú þarft.
  • Ertu að vinna allan daginn ? enginn tími fyrir æfingu ? þarftu alltaf að stökkva í skyndi­bita yfir daginn eða fá þér upp­hitaðar frosnar kjöt­bollur frá Fredda frethólk í mötu­neytinu ? Dreptu mig ekki, nenni ekki að hlusta á þetta. Svona er megin­þorri sam­fé­lagsins, fastir í hamstra­hjóli fyrir alla aðra en sjálfa sig í 50-60 ár ef við erum svo heppin að lifa. Stökktu út í búð og undir­búðu nesti. Farðu fyrr að sofa og farðu í gymmið fyrir vinnu. Ekki morgun­hani? taktu dótið þá með, skelltu þér í há­deginu, eða eftir vinnu. 30 mínútur er nóg, hættu að kjafta og drullastu til að vinna í sjálfum þér. Ps. Vertu stoltur af vinnunni þinni. Alveg sama hver hún er. Vinna er vinna og þú ert að sjá fyrir þér og öðrum, respect. Nema tollarar hjá Póstinum, það er eitt­hvað að ykkur.
  • Bæti­efni ? Ætla að stökkva út í bæti­efna­búð og kaupa þetta prótein, þetta kreatín, þessar pump töflur, þennan náttúru­lega testa boozter (dreptu mig ekki), þessar olíur. Sparaðu þér hel­vítis peninginn og tímann, út í búð með þig, keyptu þér al ís­lenskt nauta­kjöt, lamba­kjöt, fisk, inn­mat, hreinar mjólkur­vörur og eldaðu heima, alla daga, flestar mál­tíðir. Við fáum alla þá orku, þau bæti­efni og næringu sem við þurfum úr vel völdum og heima­gerðum mat.
  • Kynntu þér eitt mál­efni sem brennur á vörum mínum og annarra sem eru í mínum geira. Olíur gerðar úr fræum, þar með talið þá repju, sól­blóma og fleira. Þetta er eitur og enginn á að láta þetta inn fyrir varirnar á sér. Höldum okkur við gæða ó­lífu­olíu, avo­ca­do, ísl smjör og fl.
  • SALTAÐU MATINN ÞINN OG DREKKTU SALT. Okkur var öllum kennt að salt sé djöfullinn og fáum hjarta­á­fall. Stein­þeeeeee. Við getum unnið þessa sjúk­dóma með salti og hreyfingu. Við megum fá um 6-8 grömm af gæða sjávar/pink salti á dag, þetta hefur í för með sér mikla kosti í sam­bandi við heilsu, orku, svefn, endur­heimt og fleira. Kynntu þér þetta mál­efni, ég linka ekki á ykkur rann­sóknir með saltið og olíuna til að beina ykkur í mína átt, áttið ykkur á þessu sjálf með ykkar skoðunum.
  • Á­fengi. Ekki láta mig byrja. Hentu þessu ó­geði. Það al­gjör­lega veikasta hel­vítis kjaft­æði í nú­tíma sam­fé­lagi sem til er. Mjög auð­veld­lega. Ok, í­myndum okkur smá scenario. Það er ekkert á­fengi til, ég finn upp á því í dag og varpa hug­myndinni, er síðan spurður: “hverjar eru auka­verkanirnar, Hroði góður?” “Sko, þú getur ekki keyrt, fleiri tugir milljóna manns munu deyja af völdum þeirra sem eru undir á­hrifum þessa efnis, fjöl­skyldur splundrast vegna þess að fólk kann sér ekki hóf, þú getur sofnað á­fengis­dauða, fengið eitrun, þér líður eins og þú sért veikur í 1-2 daga a eftir, kostar hrika­lega mikla peninga, of­beldi og fleira fylgir líka” já ok, ertu geð­bilaður ??? Já og ekki gleyma að við styrkjum ríkið líka með kaupum á þessu, ofan á skattana.
  • Tóbak….. halló ???
  • Taktu alla frétta­miðla á face­book og insta­gram og blokkaðu, deletaðu, hide’aðu. Ign­or­ance is bliss. Treystu mér. Við þurfum ekki að vita hvort Gísli Marteinn festi trefilinn sinn í fram­dekkinu á antík­hjólinu sínu, hvort nýtt af­brigði af co­vid gæti sprottið upp. Allur hræðslu­á­róðurinn, nei­kvæðnin, ó­geðið og stjórnunin sem okkur er matað af fjöl­miðlum er al­gjört heila­æxli. Ég kýs ekki einu sinni, enda er þetta allt sama sullið og á endanum er bara þú og þitt tengsla­net sem hjálpar þér og stendur með þér.
  • Það er gott að vera einn og gera þitt. Leyfðu makanum þínum að gera það þegar hann vill. Þá færð þú að gera þitt. Ef ekki, þá er makinn þinn bara leiðin­legur og þurfið að ræða málin
  • Farðu ÚT. Labbaðu, keyrðu eitt­hvað. Tón­list í eyrun og leyfðu náttúrunni að hlaða þig
  • Ertu að horfa á sjón­varpið með maka þínum? Njóta saman? Slökktu á símahel­vítinu.
  • Hættu þessu stressi. Það reddast allt. Alltaf. Ef ekki núna, þá næst.
  • FARÐU Í SAUNA. Sauna minnkar líkur á hjarta og æða sjúk­dómum, alz­heimer og skyndi dauðs­föllum um 60-70%, trúirðu mér ekki? kynntu þér það og lestu klínískar rann­sóknir. Hjálpar einnig við fitu­brennslu.
  • Drullaðu þér til þess að sofa. Sofa á sama tíma, vakna á sama tíma, alla daga, allt árið, gerðu þér greiða og gerðu þér rútínu, vertu skot­heldur.
  • Síðast en ekki síst. Tengirðu við þetta flest og vilt breyta um lífs­stíl? Hugsaðu um ást­vini sem þú hefur misst, langt fyrir aldur fram, gerðu þetta fyrir þau. Verum lang besta út­gáfan sem við getum orðið. Við skuldum okkur og þeim það.

Rúnar er fyrrverandi atvinnumaður í kraftlyftingum, fyrrverandi heimsmeistari og margfaldur Evrópumeistari.

Mynd/Aðsend