Tugmilljóna sumarhús við Skorradalsvatn: Tveir ísbirnir á gólfunum – Sjáðu myndirnar

Eitt glæsilegasta sumarhús landsins er nú til sölu, Dynhvammur 1, við Skorradalsvatn í landi Hvamms. Eins og meðfylgjandi myndir sýna er húsið býsna fallegt og ekki er lóðin eða umhverfið mikið síðra.

Það er fasteignasalan Fasteignaland sem selur eignina en ekki liggur fyrir hver eigandi hússins er. Ef marka má myndirnar úr húsinu er sá mikill veiðimaður því tvö ísbjarnarskinn eru á gólfinu og fjölmargir uppstoppaðir fuglar. Þá verður ekki annað séð en að skinn af sebrahesti sé einnig á gólfinu í einu af svefnherbergjum hússins.

Í sölulýsingu Fasteignalands segir meðal annars:

„Um er að ræða einstaklega vandað sumarhús á útsýnislóð við Skorradalsvatn. Húsið er reist 2010, er á steyptri plötu, klætt að utan með ítölskum náttúrusteini og stendur á 3414 fm eignarlóð. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, forstofa, baðherbergi, eldhús/stofa/borðstofa í opnu rými með arinstæði og gólfsíða glugga sem opnast út á stóran sólpall með miklu útsýni yfir vatnið og fjallahringinn.“

Tekið er fram að eignin sé með aukna lofthæð, stórt bílastæði, heitum potti og þá er gólfhiti í öllu húsinu. Ásett verð er 63,9 milljónir króna.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar hér.