Miðað við mannaflagreiningu frá 2007 ættu lögreglumenn í dag að vera að minnsta kosti 900 talsins en þeir eru rúmlega 660, segir Snorri Magnússon formaður Landssambands lögreglumanna. Snorri er gestur í þættinum 21 í kvöld, miðvikudag.
Engin fjölgun varð í lögregluliði landsins eftir að ferðamannastraumurinn skall á „Hún var aldeilis ekki samsvarandi“, segir Snorri og bendir á opinberar tölur um mannaflaþörf, ferðamannafjölgun og bifreiðaeign í landinu. „Það kom í ljós að á sama tímabili, eða til 2015 hafði lögreglumönnum fækkað um tæp 12 prósent og bifreiðum lögreglunnar fækkað um rúm 11 prósent en bílaeign landsmanna aukist um 20 prósent, Íslendingum fjölgað um 15 prósent og ferðamönnum til Íslands fjölgað um tæp 300 prósent“.
Rúmlega 660 menntaðir lögreglumenn eru starfandi í landinu og um allt land eru auk þess tugir lögregluþjónar án lögreglumenntunar. Að sögn Snorra er þó nægt framboð af menntuðu lögreglufólki og aðsókn í námið mikil, hins vegar með með ómenntuðum lögregumönnum í afleysingum sé hægt að halda launakostnaði niðri. Fjármagn til lögreglunnar sé svo naumt skorið að það dugi ekki fyrir rekstrinum.
„Það er fullt af afleysingamönnum í lögreglunni og þeir skipta tugum um allt land og hafa gert í áratugaraðir“.
Fæð lögreglumanna miðað við þróun samfélagins minnkar án efa öryggi borgaranna í landinu. En um hvort ekki sé heppilegra að hafa alla lögreglumenn landsins menntaða svarar Snorri: „Jú, það segir sig alveg sjálft. Við höfum barist fyrir því í áratugaraðir að einungis fullmenntaðir lögreglumenn sinni löggæslu á Íslandi“
Afleysingamennirnir fá svonefnd nýliðanámskeið, það er stutt námskeið í menntastofnunum lögreglunnar eða úti með lögregluliðum þar sem kennd eru helstu handtök með búnað lögreglunnar..