Um miðjan dag í gær valt fjárflutningabíll á Dynjandisheiði með þeim afleiðingum að 60 fjár, af þeim 310 sem voru í bifreiðinni, drápust eða voru aflífuð á staðnum.
Frá þessu greinir lögreglan á Vestfjörðum á Facebook-síðu sinni.
Bílstjóra og farþega sakaði ekki en rannsókn á tildrögum slyssins er til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörðum. Héraðsdýralækni var tilkynnt um atvikið sem og öðrum sem við á.