Tryggvi rekinn eftir 27 ára starf: „Skömmin er mikil“

Tryggvi Marteinsson, sérfræðingur í kjaramálum hjá Eflingu, greindi frá því á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi að hann hefði verið rekinn úr starfi.

„27 ára starf var virt að vettugi enda kommúnistar við stjórn. Það er mikil reisn yfir þessu félagi og þetta var það fyrsta sem ný stjórn sýndi til að leysa vandann sem Sólveig skapaði.

„Skömmin er mikil hjá þeim sem eru titlaðir yfirmenn í dag,“ sagði Tryggvi í færslu sinni sem mbl.is greindi fyrst frá.

Heimildir mbl.is herma að Tryggvi hafi hótað því að vinna Sólveigu Önnu Jónsdóttur, fyrrverandi formanni félagsins, mein.

Tryggvi fær mikinn stuðning í athugasemdum við færsluna og segir til dæmis einn: „Þetta er mikill missir fyrir félagsmenn Eflingar. Það eru fáir ef nokkrir sem ég hef rætt við sem hafa viðlíka þekkingu á vinnurétti og íslenskum vinnumarkaði og þú. Gangi þér vel í framhaldinu.“