Trúnaðar­menn Eflingar segja Sól­veigu ljúga um sam­komu­lag við upp­sagnir: „Hún hefði vitað það hefði hún setið fundina“

Trúnaðar­menn Eflingar segja full­yrðingar Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, formanns Eflingar, um að sam­komu­lag hafði náðst um fram­kvæmd upp­sagnar vera með öllu ranga, „sem hún hefði vitað hefði hún setið fundina.“

Þetta kemur fram í yfir­lýsingu frá Trúnaðar­mönnum sem Frétta­blaðið greinir frá.

Þar segir meðal annars að í ljósi þess að Sól­veig Anna hafi rofið trúnað um bókun sem átti sér stað við lok sam­ráðs­ferli sem trúnaðar­menn Eflingar áttu með lög­manni hennar gætu þau ekki séð að þau væru bundin trúnaði lengur.

Í bókun um lok sam­ráðs­ferlis kemur fram að trúnaðar­menn hafi lýst yfir and­stöðu við hóp­upp­sögnina og talið ekkert því til fyrir­stöðu að ná yfir­lýstum mark­miðum stjórnar Eflingar með öðrum hætti.
Þá segir einnig: „Þar sem ekki tókst að ná sam­komu­lagi um aðra leið fallast trúnaðar­menn á að gera sam­komu­lag að hluta, þ.e. um fram­kvæmd á upp­sagnar­fresti.“

Í yfir­lýsingu trúnaðar­manna Eflingar segir að þau telji ekkert af yfir­lýstum mark­miðum stjórnar Eflingar krefjist hóp­upp­sagnar.

„Við gáfum til kynna að við tækjum allar til­lögur al­var­lega og reyndum að vera sam­starfs­fús til lausna. Ekkert varð úr því. Við getum ekki sagt að um sam­ráð hafi verið um að ræða í skilningi laga um hóp­upp­sagnir, engin vilji var til breytinga eða mildunar á hóp­upp­sögn heldur ein­hliða á­kvörðun sem er röng, ó­skyn­sam­leg og með öllu ó­nauð­syn­leg.
Gefnar voru upp á­stæður sem fólust í breytingum á ráðningar­kjörum og til að upp­fylla skil­yrði varðandi jafnauna­vottun. Þessar á­stæður eru ekki byggðar á rökum og halda engu vatni,“ segir jafn­framt í yfir­lýsingu þeirra.

Þá segir einnig að þegar ljóst væri að ekki væri hægt að koma í veg fyrir eða milda að­gerðir hafi sam­tal hafist um það hvernig standa mætti að þeim og til varð bókun sem vitnað er í hér að ofan.
Trúnaðar­mennirnir segja að eftir á að hyggja hefðu þau viljað að hverjum og einum starfs­manni yrði af­hend upp­sögnin af hendi formannsins.

Fréttablaðið/Aðsent