Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur kallað eftir því að fólk sniðgangi bandaríska fyrirtækið Goodyear sem er þekkt fyrir framleiðslu sína á hjólbörðum.
Trump kallaði eftir þessu á Twitter-síðu sinni í dag og er óhætt að segja að færsla forsetans hafi vakið mikla athygli. Trump segir að ástæðan sé sú að fyrirtækið bannar starfsmönnum sínum að bera til dæmis derhúfur með áletrunum á borð við „Make America Great Again“ – orð sem Trump gerði fræg í kosningabaráttu sinni árið 2016.
„Ekki kaupa GOODYEAR DEKK – Þeir tilkynntu BANN Á MAGA HÚFUNUM,“ sagði Trump í færslu sinni og bætti við að hann væri nú að leika sama leik og „róttækir vinstri demókratar“ eins og hann orðaði það.
WIBW, fréttamiðill í Kansas, birti í gær mynd af leiðbeiningum fyrir starfsfólk í verksmiðju Goodyear í Kansas. Á umræddri mynd kemur fram að ákveðin pólitísk slagorð séu ekki leyfð. Í hópi þeirra sem ekki eru leyfð eru MAGA (Make America Great Again), Blue Lives Matter og All Lives Matter, en meðal þeirra sem eru leyfð er til dæmis BLM (Black Lives Matter).
Færsla forsetans hefur vakið töluverð viðbrögð. Eins og gengur og gerist lýsa margir yfir stuðningi við hann á meðan aðrir velta fyrir sér hvort það virkilega hlutverk forseta Bandaríkjanna að hvetja landsmenn til að sniðganga ákveðið bandarískt fyrirtæki.
Don’t buy GOODYEAR TIRES - They announced a BAN ON MAGA HATS. Get better tires for far less! (This is what the Radical Left Democrats do. Two can play the same game, and we have to start playing it now!).
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) August 19, 2020