Skólasystir Kolbrúnar Þorsteinsdóttur, einna þeirra sem lýst hefur því ofbeldi sem viðgengst á meðferðarheimili Laugalands, kveðst hafa greint skólastjórnendum frá frásögn Kolbrúnar. Þetta kemur fram í tímariti Stundarinnar.
Málinu var vísað frá með þeim orðum að Kolbrún væri vandræðaunglingur og því ekki trúverðug.
Þáverandi skólastjórnendur segjast ekki muna til þess að hafa fengið málið í sínar hendur og minnast þess ekki að ofbeldi hafi verið beitt í skólanum.
Hrint niður stigann
Síðastliðinn janúar greindu sex konur frá því að Ingjaldur Arnþórsson hefði beitt þær andlegu og líkamlegu ofbeldi á meðan þær dvöldu á Laugalandi. Þeirra á meðal var Kolbrún sem sýndi téðri skólasystur áverka sem hún hlaut meðan hún var á meðferðarheimilinu.
Skólasystirin lýsir því að hafa séð marbletti Kolbrúnar og spurt hvað hafði komið fyrir. „Þá sagði hún mér frá því hvað gengi á þarna og hvernig Ingjaldur kæmi fram við stelpurnar.“ Ingjaldur hafi hrint Kolbrúnu niður stiga. Í kjölfarið lét hún skólastjórnendur vita og segir þau ekkert hafa aðhafst í málinu.