Myndband sem Trausti Eysteinsson birti á Facebook-síðu sinni í gær hefur vakið gríðarlega athygli, en á því sést þegar hann neitar að setja upp grímu í verslun Bónus.
Trausti er þeirrar skoðunar að grímunotkun geri ekkert nema að taka súrefni af fólki og gera það veikara. Trausti freistaði þess að fara inn í verslunina með trefil fyrir vitum sér. Honum var hins vegar meinaður aðgangur af starfsmanni Bónus sem hlaut mikið lof fyrir fagleg viðbrögð.
Það þarf vart að taka það fram að grímuskylda er nú í verslunum og kemur hún ekki til af góðu. Útbreiðslu kórónuveirunnar sem veldur COVID-19 hefur verið mikil að undanförnu og hafa sóttvarnaryfirvöld mælt sterklega með notkun hennar. Grímurnar geta hindrað dropasmit og þykja þær býsna mikilvæg viðbót við einstaklingsbundnar sóttvarnir.
Óhætt er að segja að myndbandið hafi vakið athygli og voru ófáir sem létu Trausta heyra það í athugasemdum. Þegar þetta er skrifað hafa um 50 þúsund manns horft á myndbandið á Facebook-síðu Trausta og hátt í 600 athugasemdir verið skrifaðar – vel flestar neikvæðar í hans garð.
Trausti svarar fyrir þá gagnrýni sem hann hefur fengið yfir sig í viðtali við Mannlíf. „Það er ótrúlegt níð og einelti í gangi. Ég er bara dæmdur án dóms og laga,“ segir Trausti í viðtalinu og segist vita betur.
„Ég veit alveg hvað ég er að gera og veit þetta miklu betur enda menntaður í því að kenna fólki að anda. Í þessu myndbandi var ég ekki að tala við starfsfólkið heldur yfirvaldið og í rauninni alla sem eru sofandi þarna úti.“ Trausti segist hafa kennt öndun í 13 ár og segir að honum gangi gott eitt til.
Í viðtalinu segir Trausti að hann vilji biðja starfsfólk Bónus afsökunar – og alla þá sem misskildu skilaboð hans.
„Sérstaklega starfsfólkið í búðinni, auðvitað. Ég er skapmaður en ég er líka fljótur niður og mjög fljótur að segja fyrirgefðu. Ég er ekkert pirraður út í það heldur útí það hvað yfirvöld eru að láta fólk gera,“ segir Trausti.
Hér má nálgast upplýsingar um grímur og gagnsemi þeirra á vef COVID.is.
Hér má nálgast leiðbeiningar um notkun þeirra á vef Embættis landlæknis.