Toshiki Toma rifjar upp „helvítið“ sem blasti við honum fyrir 10 árum

Toshiki Toma, prestur innflytjenda á Íslandi, rifjar upp að í dag eru tíu ár liðin frá hamförunum í Japan þegar jarðskjálfti af stærðinni 9,0 reið yfir undan ströndum landsins.

„Kæru vinir. Í dag fyrir 10 árum, 11. mars 2011 föstudaginn, mætti ég í vinnuna mína Neskirkju um kl. 9, opnaði tölvu mína og þar var helvíti,“ segir Toshiki í færslu á Facebook-síðu sinni.

Jarðskjálftinn varð skömmu eftir hádegi að staðartíma en eins og kunnugt er orsakaði þessi öflugi skjálfti flóðbylgju sem lenti á ströndum landsins með skelfilegum afleiðingum. Talið er að um tuttugu þúsund manns hafi látist í hörmungunum sem ollu gríðarlegu tjóni.

Toshiki bendir á í færslu sinni að margir Japanir hafi þurft að breyta lífsáætlunum sínum vegna hamfaranna. Þá fylgi margar sorgarsögur hörmungunum.

„Mér fannst þetta fyrst vera eins og stríð en á eftir tók ég eftir muni á milli stríðis og þessara hamfara. Stríð býr til aðeins sorg og hatur. En hamfararnir fyrir 10 árum bjuggu til sorg og erfiðleika í lífi fólks að vissu leyti, en samtímis gáfu þær tækifæri á að birta kærleik manna í alheiminum og móta samstöðu.“

Toshiki segir að fyrir hann, japanskan einstakling á Íslandi, sé minningardagur um fórnarlömb hamfaranna í Japan en einnig dagur þakklætis vegna þess kærleika og þeirrar samstöðu sem fólk á Íslandi sýndi Japönum.

„Þakkir til ykkar og friður og blessun Guðs séu yfir Íslandi, Japan og alheiminum.“

Hér að neðan má sjá myndband frá National Geographic frá þessum degi árið 2011.