Tommi vill ekki að fólk verði látið hætta að vinna sjötugt: „The fifties are the new thirties“

Tómas Tómasson, þingmaður Flokks fólksins, best þekktur sem Tommi á Búllunni, segir það ósanngjarnt að fólk verði látið hætta að vinna 70 ára. Tommi ræddi þetta undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag:

„Þannig er að þegar menn, og kon­ur, verða 70 ára og vinna hjá hinu opin­bera eru þeir skikk­aðir til að hætta að vinna. Ég er aftur á móti á und­an­þágu, orð­inn 73 ára næst­um, og er búinn að gera fjög­urra ára samn­ing við hið opin­bera um að vera hér í fullri vinnu á ofur­launum að auki,“ sagði hann.

„Ég fór í gær að hitta frænda minn, hann er lækn­ir, hann er 73 ára, og um dag­inn fór ég að hitta gamlan skóla­bróður sem er tann­lækn­ir, hann er 72 ára, og þeir voru báðir við góða heilsu. En ég fékk í gær tölvu­póst frá konu sem var búin að vinna í 16 ár hjá hinu opin­bera við umönn­un, hún varð sjö­tug fyrir nokkrum mán­uðum og þá var henni nán­ast hent út úr sinni vinnu. Þetta er ósann­gjarnt. Ég segi því mið­ur.“

Konan spurði hann hvers vegna í ósköp­unum þetta væri ekki leið­rétt. Vitn­aði hún í Bill Wyman, fyrrum bassa­leik­ara Roll­ing Sto­nesm sem sagði eitt sinn í viðtali: „The fifties are the new thirties“ eða „sex­tugssald­ur­inn er hinn nýi fer­tugs­ald­ur“.

Tommi sagði þetta ósanngjarnt:

„Ég vil meina að við sem erum á þessum aldri og erum með góða heilsu eigum að fá að vinna. Það er ósann­gjarnt að reka fólk heim þegar það getur unn­ið.“