Tómas A. Tómasson, þingmaður Flokks fólksins, fékk tölvupóst í fyrradag frá konu sem er búin að vinna í sextán ár hjá hinu opinbera við umönnun. Tómas, eða Tommi eins og hann er gjarnan kallaður, sagði frá þessu í umræðum á Alþingi í gær.
Tommi sagði að konan hefði lýst því að hún hefði orðið sjötug fyrir nokkrum mánuðum og þá hafi henni nánast verið hent út úr sinni vinnu.
„Þetta er ósanngjarnt. Ég segi því miður. Hví í ósköpunum er þetta ekki leiðrétt? Bill Wyman, sem var bassaleikari Rolling Stones, sagði í viðtali árið 1989: The fifties are the new thirties. Ég vil meina að við sem erum á þessum aldri og erum með góða heilsu eigum að fá að vinna. Það er ósanngjarnt að reka fólk heim þegar það getur unnið.“
Tómas sagði í ræðu sinni að hann væri sjálfur eldri borgari og orðinn 72 ára. Gagnrýndi hann það að þegar fólk verður 70 ára og vinnur hjá hinu opinbera sé það skikkað til að hætta að vinna.
„Ég er aftur á móti á undanþágu, orðinn 73 ára næstum, og er búinn að gera fjögurra ára samning við hið opinbera um að vera hér í fullri vinnu á ofurlaunum að auki. Ég fór í gær að hitta frænda minn, hann er læknir, hann er 73 ára, og um daginn fór ég að hitta gamlan skólabróður sem er tannlæknir, hann er 72 ára, og þeir voru báðir við góða heilsu,“ sagði Tommi meðal annars.