Tommi baðst afsökunar á að hafa mætt í gallabuxum

Tómas A. Tómasson, þingmaður Flokks fólksins, steig í pontu á Alþingi í morgun og baðst afsökunar á að hafa verið í gallabuxum á fundi Alþingis þann 22. desember.

Tómas, sem er oftar en ekki kallaður Tommi á Búllunni, steig fyrst í pontu og benti á að eldri borgarar þessa lands væru 45 þúsund talsins. Þar af þyrfti þriðjungur að komast af með innan við 300 þúsund krónur á mánuði.

Tommi steig svo aftur í pontu örfáum mínútum síðar og baðst afsökunar á klæðaburði sínum rétt fyrir jól. „Ég var í gallabuxum og mér var bent á það góðfúslega að þetta tilheyrði ekki siðareglum Alþingis og ég biðst velvirðingar á því hér og nú og tilkynni það hér með að ég er kominn í ný föt. Takk.“

Umræða um klæðaburð þingmanna skýtur reglulega upp kollinum. Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi til dæmis Björn Leví Gunnarsson, þingmann Pírata, harðlega árið 2018 eftir að hinn síðarnefndi gekk um sali þinghússins á sokkaleistunum.