Tómas A. Tómasson, veitingamaður oft kenndur við Búlluna og nú þingmaður Flokks fólksins, segir að þörf sé á að endurskoða hugmyndafræðina um jafnan hlut karla og kvenna í stjórnum félaga.
„Nú er mikið talað um jafna kynjaskiptingu í stjórnum, bæði hlutafélaga sem skal vera 40-60 og í stjórnum fyrirtækja,“ segir Tommi á Twitter-síðu sinni og bætir við að hans reynsla sé góð af konum i æðstu stöðum hans fyrirtækja.
„En nú er kynjum farið að fjölga og þá verður að endurskoða hugmyndafræðina. Ég er ekki að grínast,“ segir Tommi. Óvíst er hvernig hann vill endurskoða hugmyndafræðina og hvort af því verði á næstu árum.
Rannveig Rist, forstjóri álversins í Straumsvík, kallaði eftir því á dögunum að kynjakvóti yrði lögfestur í framkvæmdastjórnir fyrirtækja líkt og gildir um stjórnir þeirra. Við sama tilefni varpaði hún fram þeirri umdeildu spurningu hvers vegna leikskólar væru ekki opnir allan sólarhringinn.