Tómas A. Tómasson, betur þekktur sem Tommi á Búllunni, er óhress með meirihlutann sem fer með völd í borginni. Han segir að miðborgin sé ekki svipur hjá sjón og segir að meirihluti borgarstjórnar hafi misskilið hlutverk sitt.
Tómas er pistlahöfundur hjá Eiríki Jónssyni og fjallar nýjasti pistill hans um stöðu mála í miðborg Reykjavíkur.
„Núna er ég búinn að vera með annan fótinn í miðborginni og mér til mikillar skelfingar sé ég ekki marga borgarbúa hér á göngu. Það er alltaf að koma betur og betur í ljós að meirihluti borgarstjórnar hefur misskilið hlutverk sitt svo ekki sé dýpra í árinni tekið,“ segir hann og bætir við að hinn almenni borgarbúi eigi í raun ekkert erindi niður í bæ lengur.
„Það er af sem áður var maður fór ofan í bæ bæði til að verzla, sýna sig og sjá aðra. Það er lítið sem ekkert fyrir okkur að gera þar lengur nema kaffihús, barir, skemmtistaðir og veitingastaðir og búið að gera allskonar til að gleðja “túrhesta” f..k. Þetta er sorglegt. Eru eintómir kjánar við völd? Margir fyrirtækjaeigendur sem hafa stundað hér viðskipti árum saman eru annað hvort að loka, farnir á hausinn, að flytja eða fluttir í burtu.“
Tómas segist hafa ferðast mikið undanfarin ár og segir hann að fáar borgir hafi einblínt jafn mikið á að ginna til sín ferðamenn og Reykjavík.
„Það er ekki hlutverk borgarstjórnar. Borgarstjórn er kosin til að þjóna borgarbúum en ekki segja þeim fyrir verkum,“ segir hann og bætir við að enginn sé ánægður nema „sjálfumglaðir“ borgarfulltrúar meirihlutans.
„Þeir hvorki skilja né sjá að þeir hafa gert mistök og við sitjum uppi með skaðann. Þetta er dapurleg staða.“