Tommi á Búllunni lagði í tvö stæði og biðst afsökunar – Sjáðu myndina

Tómas A. Tómasson, oft kenndur við Búlluna, gengst fúslega við því að hafa lagt bifreið Flokks fólksins í tvö stæði í Kringlunni í vikunni. Mynd af bílnum birtist meðal annars í hópnum Verst lagði bíllinn þar sem málshefjandi skrumskældi slagorð Flokks fólksins, Fólkið fyrst, og sagði: „Ég fyrst, svo allt hitt“

Tómasi til varnar verður að viðurkennast að stæðin tvö við bónstöðina Kringlubón eru lítil og tæpast fyrir tvo bíla. Á það var líka bent í umræðum í Facebook-grúppunni þar sem sumir komu Tómasi til varnar.

Tommi stígur sjálfur fram á Twitter þar sem hann gengst við þessum mistökum og lofar að gera þau aldrei aftur. Hann segir:

„Lítið að ske, var reyndar böstaður í bílastæði í Kringlunni. Tók tvö pláss, sorry en þetta var svo seint að ég held að enginn hafi þurft frá að hverfa. En jú, ég er sekur “no question”. Aldrei aftur, kæri Jón, sem böstaði mig. Áfram veginn.“