„Fyrst það er á annað borð búið að leyfa þessa starfsemi þá má ekki búa svo um hnútana að þessi fyrirtæki geti ekki þrifist vegna ósanngjarnra hafta,“ segir Tómas A. Tómasson, betur þekktur sem Tommi á Búllunni, í pistli sínum á vef Eiríks Jónssonar.
Þar skrifar Tommi um frumvarp dómsmálaráðherra þess efnis að lítil handverksbrugghús fái að selja bjór út úr húsi á framleiðslustað. Sitt sýnist hverjum um þetta en Tommi rifjar upp að hann hafi átt veg og vanda að fyrsta mini-brugghúsi landsins, Hinum íslenska bjórkjallara. Hann lokaði staðnum eftir nokkra mánuði og hélt áfram í verkefnum sem gengu prýðilega: Hótel Borg, Hard Rock Café, Kaffibrennslunni og Skuggabar.
„Nú er öldin önnur. Það hafa risið hingað og þangað um landið fyrirmyndar mini/micro brugghús sem framleiða allskyns tegundir af bjór sem mér er sagt að sé bara nokkuð góður og sumir hverjir fluttir út. Áfengis og tóbaksverzlun ríkisins sér sér ekki fært að hafa til sölu allar þær tegundir sem framleiddar eru sem er ósanngjarnt fyrst það er á annað borð búið að leyfa þessa starfsemi.“
Tommi segir að um frumvarpið sem nú liggur fyrir hafi komið upp gagnrýnisraddir, til dæmis að breytingin muni auka áfengisneyslu. „Og fyrir liggur að koma með höft og takmarkanir varðandi magn og afgreiðsludaga þar sem kirkjunni og einhverjum þjóðhátíðardögum er blandað inn í. Bara til að friða þá sem halda þetta auki alkahólneyslu í landinu sem er rangt,“ segir Tommi og bætir við að það sé enginn eins skilningur slæmur og misskilningur.
„Ég verð að viðurkenna að þessi rök skil ég ekki. Sjálfur hefi ég ekki smakkað dropa í yfir 40 ár en hefi fylgst vel með þróun mála. Mér er í fersku minni þegar bjórinn var leyfður 1. marz, 1989. Átti fyrst að vera til reynslu og einhverjar takmarkanir lágu í loftinu. Fyrstu árin voru ekki nema um og 40 mismunandi tegundir á boðstólum, í flöskum aðallega,“ segir Tommi og bætir við að hann fái ekki séð að bjórsala hafi skaðað þjóðina meir en aðrar þjóðir.
„En aftur að alvöru málsins. Fyrst það er á annað borð búið að leyfa þessa starfsemi þá má ekki búa svo um hnútana að þessi fyrirtæki geti ekki þrifist vegna ósanngjarnra hafta. Ekki misskilja mig, ég er ekki að hvetja til áfengisneyzlu, en að fenginni reynslu þá er ég sannfærður um að bezta leiðin til að draga úr henni eru almennar kröftugar forvarnir og gott aðgengi að meðferð fyrir þá sem þurfa á slíku að halda.“