Tommi á Búllunni: Eðlilegt að Áslaug Arna fljúgi sem oftast með Gæslunni

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur fengið stuðning úr óvæntri átt því veitingamaðurinn Tómas A. Tómasson, betur þekktur sem Tommi á Búllunni, kemur henni til varnar.

Tommi er pistlahöfundur á vef Eiríks Jónssonar þar sem hann segir skoðanir sínar á mönnum og málefnum, en núna tjáir hann sig um þyrluflug Áslaugar Örnu með Landhelgisgæslunni. Þyrluflugið var gagnrýnt talsvert og var talað um bruðl á almannafé.

Í pistli sínum bendir Tómas á að Áslaug Arna sé í reynd æðsti yfirmaður Landhelgisgæslunnar og heyrir hún beint undir ráðuneyti ráðherrans.

„Þar sem ráðherrann ber í raun ábyrgð á störfum Gæslunnar er eðlilegt að hann (ráðherrann) þekki af eigin raun hvað þar fer fram. Ekki bara af afspurn. Því er eðlilegt að ráðherrann fljúgi sem oftast með þyrlum Gæslunnar þegar því verður við komið. Það er ekki sóun á almannafé. Það er starfskynnig sem gerir ráðherrann færari um að skilja og taka ákvarðanir þegar kemur að málum Gæslunnar. Í þessu tilfelli var eini fjárhagslegi kostnaðurinn bensín,“ segir Tommi.

Tommi hefur verið lengi í rekstri, eða tæp 40 ár, og segist hann gjarnan senda fólk sitt erlendis í vettvangsrannóknir og þjálfun. Það sé í raun nauðsynlegt til að þeir kynnist því sem starfi sem þeir eru ráðnir til að gegna.

„Eins er það með ráðherrann, hann/hún verður að hafa verið um borð og þreifað á umhverfinu. Það hefst bara með eiginlegri reynslu. Það er óskiljanlegt að fólk sjái þetta ekki en noti þess í stað til að gera bæði Gæsluna og ráðherrann tortryggileg. Þetta er ósangjarnt. Manneskjan getur ekki vitað hvað er um að vera ef hún kemur ekki nálægt þessu “first hand”.“

Tómas endar pistilinn svo á þessum orðum: „Við eigum ekki að vera eins og Trump sem notar hvert tækifæri til að gera andstæðingana tortryggilega.“

Pistilinn má lesa í heild sinni hér.