Tommi á Búllunni: „Dragið í land með þessa fáran­legu Borgar­línu“

„Í guðanna bænum, ef það er ekki orðið of seint, dragið í land með þessa fáran­legu Borgar­línu,“ segir Tómas A. Tómas­son, veitinga­maður oft kenndur við Búlluna, í pistli á vef Ei­ríks Jóns­sonar.

Tómas, sem hyggur á fram­boð fyrir Flokk fólksins fyrir þing­kosningarnar í haust, bendir í pistli sínum á að hann sé oft á ferðinni á háanna­tíma, milli 15:30 og 17:30.

„Og því­lík um­ferð. Það eru bók­staf­lega tugir þúsunda bíla í um­ferðinni. Fólk að fara heim úr vinnunni eða skólanum eða eitt­hvað t.d. úr Laugum eins og ég. Ég hugsa með mér, er þetta fólkið sem ætlar að hætta að nota bílinn og fara í strætó? Í öllum veðrum með inn­kaupa poka, börn eða hina ýmsu hluti sem fylgja því.“

Tómas hefur búið víða, Los Angeles og Miami til dæmis, auk þess að hafa dvalið lengi í New York. Hann segir að í New York hvarfli ekki annað að honum en að nota neðan­jarðar­lestina en í Los Angeles og Miami hvarfli ekki að honum að nota al­mennings­sam­göngur.

Hann nefnir að hann hafi nokkrum sinnum komið til Kúbu, sem er nánast jafn­stór að flatar­máli en Ís­land en með marg­falt fleiri íbúa. Þar sé nóg pláss út um allt og ekki verið að þétta byggð.

„Ég kom til Taí­van (fyrrum For­mósu) fyrir nokkrum árum. Taí­van er 33.000 fer­kíló­metrar og þar búa um 23 milljónir. Þar er líka nóg pláss. Við erum rúm­lega 360 þúsund og hér er verið að þétta byggð í erg og gríð.“

Tómas spyr hvers vegna í ó­sköpunum sé verið að þétta byggð þegar draumur flestra fjöl­skyldna er að eiga sitt eigið hús með bíl­skúr og garði. „Hvar eiga börnin að leika sér í þéttri byggð. Við erum ekki í Hong Kong eða London eða annarri stór­borg, við erum í Reykja­vík, dá­sam­legu Reykja­vík á yndis­lega Ís­landi með nóg pláss.“

Pistil Tómasar má lesa í heild sinni hér.