Tommi á Búllunni: Blokkir út um allt – eina út­sýnið er næsta blokk

„Það er verið að byggja enda­lausar blokkir út um allt sem eru margar svo þétt saman að eina út­sýnið er næsta blokk,“ segir Tómas A. Tómas­son veitinga­maður, betur þekktur sem Tommi á Búllunni, í pistli á vef Ei­ríks Jóns­sonar.

Þar gerir Tommi skipu­lags­mál í borginni meðal annars að um­tals­efni. Hann gerir það á nokkuð skemmti­legan hátt með því að vísa í Óskars­verð­launa­kvik­myndina Brid­ge on the River Kwai frá árinu 1957.

Myndin segir frá því þegar Japanir her­tóku breska her­menn og skelltu í fanga­búðir í Búrma. Áttu fangarnir að byggja brú yfir Kway-fljótið. Einn af þessum föngum, sem leikinn var af Alec Guin­ness, neitaði að taka þátt í verk­efninu þar sem hann taldi það brjóta gegn á­kvæðum Genfar-sátt­málans.

„En þegar hann sér hvað Japanarnir eru slappir stjórn­endur verksins þá stenst hann ekki máti og tekur að sér stjórn fram­kvæmda og klárar brúna. En áttar sig svo á því að hann var að vinna fyrir ó­vinina og þegar vígja á brúna og fyrsta lestin er að fara yfir þá sér hann að sér og segir þessa mögnuðu settningu “WHAT HAVE I DONE?” um leið og hann hnígur niður eftir að hafa verið skotinn í hita leiksins og dettur á raf­magns­sprengju­box sem setur í gang sprengju sem búið var að koma fyrir undir brúnni og brúin springur.“

Tommi segir að honum verði iðu­lega hugsað til skipu­leggj­enda Reykja­víkur­borgar sem hafa keppst við að þétta byggð, eins og plássið á Reykja­víkur­svæðinu sé af skornum skammti.

„Það er verið að troða, sem dæmi, um 800 í­búðum bara á svo­kölluðum Hlíðar­endareit. Og hjá Kirkju­sandi er svipað. Maður gæti haldið að þetta væri Hong Kong eða Man­hattan. Hvar eru rað­húsin, par­húsin, ein­býlis­húsin, hús með görðum fyrir heitan pott og grill­að­stöðu, prívat­svæði með bíl­skúr ekki bara merkt pláss í bíla geymslu sem er í óra­fjar­lægð frá vistar­verum í­búanna.“

Tommi segir að skaðinn sé skeður og í raun lítið hægt að gera.

„Eina sem ég er að vona er að þeir sem eru á­byrgir muni á ein­hverjum tíma­punkt vakna til lífsins, horfa yfir völlinn og borgina og segja “WHAT HAVE I DONE?”.“