„“Wake up” – þetta er sorgleg staðreynd og þetta er rangt,“ segir Tómas A. Tómasson, betur þekktur sem Tommi á Búllunni.
Tómas er pistlahöfundur á vef Eiríks Jónssonar og vekja pistlarnir hans jafnan athygli.
Á dögunum skrifaði hann um sjúkdóma sem geta reynst banvænir, sjúkdóma sem allir landsmenn ættu að þekkja. Fyrst nefnir hann alkóhólisma en Tómas hefur sjálfur reynslu af honum. Því næst skrifar hann um sykursýki sem á það skylt við alkóhólisma að hægt er að halda honum í skefjum. Þriðji sjúkdómurinn sem hann nefnir er alzheimer, sjúkdómur sem getur verið lengi að þróast.
„Sjúkdómseinkennin, sem eru sýnileg almenningi, eru breytt hegðun, minnisleysi og oft undarleg framkoma. Það er mikið álag í fjölskylduna að ganga í gegnum þetta, oft langa ferli, og horfa á ástvin hverfa smám saman. Endalaus þjáning.“
Tómas segir að það sem tengir alkóhólisma og alzheimer saman er að þeir séu oft gerðir að aðhlátursefni.
„Það eru heilu bíómyndirnar byggðar á fylleríi fársjúks alkóhólista sem er í raun við dauðans dyr og eins er oft gert grín að gleymsku og skrýtinni hegðun alzheimersjúklingsins. Háttalag beggja þykir sniðugt þó þeir séu í raun nær dauða en lífi,“ segir Tómas sem er ekki hlátur í huga.
„Þetta er rangt. Það gerir engin grín að fárveikum krabbameinssjúklingi. Þar er dauðaþögn og sorg allt um kring. Eins með alla aðra banvæna sjúkdóma sem draga fólk til dauða, þögn, sorg og umhyggja. Engum er hlátur í huga. En alkóhólismi og alzheimer eru aðhlátursefni. “Wake up” – þetta er sorgleg staðreynd og þetta er rangt.“