Tómas A. Tómasson, þingmaður Fólks flokksins og eigandi Hamborgarabúllunnar, gerði unga afbrotamenn að máli sínu á Alþingi í dag.
„Í síðustu viku var rætt hér í Alþingi um aðbúnað fangavarða, ýmist á litla hrauni eða Kvíabryggju. Þá fór ég aðeins að hugsa til baka. Ég kom nokkrum sinnum á litla hrauni árið 1986. Ég var heimsækja frænda minn sem sat þar inn í nokkra mánuði,“ sagði Tómas.
„Þannig er að ég hitti reglulega unga menn sem hafa nýlokið afplánun og mér verður oft hugsað til þess að þessir menn sem hafa setið inni í fangelsi, þeir áttu ekkert erindi þangað. Þetta eru bara strákar sem lent hafa á einhverjum villigötum, yfirleitt alltaf tengt áfengi eða einhverjum fíkniefnum. Það er synd að setja þessa menn óharðna enn, þó þeir hafi brotið af sér, í svona haldi í svona hörðu fangelsi.,“ bætti hann við.
Hann sagði að víða um land eru yfirgefnir heimavistarskólar eða jafnvel sumarhótel sem er ekki starfrækt nema fjóra mánuði á ári sem ættu að vera notuð í aðstöðu fyrir þessa stráka sem er að fara í fyrsta skipti inn.
„Ef þeir eru óþekkir og stinga af og fara í bæinn þá er hægt að segja þá á Litla Hraun eða Hólmsheiði,“ sagði Tómas.
„En á meðan þeir taka út sína fyrstu refsingu þá eiga þeir miklu frekar að fá einhvers konar meðferð sem tengist þá þeirra raunverulega vandamálið sem er fíkn. Það er mjög illa farið með þessa ungu menn að setja óharðnaða unglinga, þeir eru raunverulega þó þeir eru kannski vel yfir tvítugt, að setja þá í umhverfi þar sem eru harðsvíraða glæpamenn.“
„Þess vegna legg ég til að það verði komið svona millistig á afplánun sem hefur að gera með að umhverfið sé mannlegt og notalegt og fangarnir hafi tækifæri til að hugsa ráð sitt og taka breytingu,“ sagði Tómas að lokum.