Tómas segir skrif­stofu­vinnu barn síns tíma: „Að mínu mati er lausnin ein­föld“

Tómas Ragnarz, fram­kvæmda­stjóri og eig­andi Regus á Ís­landi, segir tíma­bært að breyta til þegar það kemur að úr­eltum vinnu­stöðum. Hann rifjar upp orð fram­kvæmda­stjóra Airbnb sem sagði að hin hefð­bundna skrif­stofa, þar sem fólk sækir vinnu sína á hverjum morgni vera dauða.

„Síðustu tvö ár hafi sýnt svo ekki verður um villst að ein, föst vinnu­að­staða sé „tíma­skekkja“ sem eigi rætur að rekja til ó­tækni­væddra og net­lausra starfs­hátta. Fram­tíðin eftir far­aldurinn sé færan­leg,“ skrifar Tómas.

„Airbnb hefur sjálft á­kveðið að draga mark­visst úr mikil­vægi skrif­stofunnar og gerir nú öllu starfs­fólki sínu kleift að vinna þaðan sem það sjálft vill. Hug­myndin sé ekki síst sú að laða til sín hæfi­leika­ríkt starfs­fólk hvaða­næva að úr heiminum, sem svo getur unnið hvar sem er í heiminum. Þessi stefnu­breyting kemur ekki að á­stæðu­lausu. Síðustu tvö ár í rekstri Airbnb, þegar starfs­fólk fyrir­tækisins var nær al­farið í fjar­vinnu, voru þau af­kasta­mestu í sögu Airbnb,“ heldur Tómas á­fram.

Hann segir Airbnb ekki vera eina fyrir­tækið á þessari veg­ferð. Önnur stór­fyrir­tæki eins og Goog­le og App­le hafa inn­leitt blöndu af fjar- og stað­vinnu þannig að fólk er að­eins skuld­bundið til að mæta nokkrum sinnum í viku á skrif­stofuna.

„Þrátt fyrir þetta er maðurinn enn­þá fé­lags­vera og fólk mun á­fram vilja hitta sam­starfs­fólk sitt. Hvernig er þá best að blanda þessu tvennu saman: Frelsinu til að starfa þar sem maður vill og þörf fólks til að sýna sig og sjá aðra? Ég myndi alla vega telja best að starfs­fólk hefði full­komið frelsi til að mæta þegar því hentar. Fyrr­nefndur fram­kvæmda­stjóri Airbnb er sömu skoðunar en bætir við að fyrir­tækið sé með eina viku í hverjum árs­fjórðungi þar sem fólki er gert að hittast í eigin per­sónu til skrafs og ráða­gerða sem og til að þjappa hópnum betur saman.“

„En ef þetta er fram­tíðin, hver er þá til­gangurinn með því að reka eigið hús­næði? Fyrir­tæki gætu sparað sér ó­mælda fjár­muni með því að sleppa því ein­fald­lega að eiga eigin­legar höfuð­stöðvar eða skrif­stofur. Það ætti því ekki að koma á ó­vart að sí­fellt fleiri fyrir­tæki muni gefa hús­næði sitt upp á bátinn á komandi árum. En hvar á starfs­fólk þá að hittast?“ skrifar Tómas.

Hann segir hins vegar að það sé ein­föld lausn á málinu:

„Að mínu mati er lausnin ein­föld: Sveigjan­leg fjar­vinnu- og funda­að­staða. Að um allt land geti fólk nálgast góða vinnu­að­stöðu sem það getur sótt í þegar því hentar. Þar sem hópar starfs­fólks geta fundað þegar þörf krefur. Þessi veg­ferð er þegar hafin á Ís­landi og innan ör­fárra ára verður hægt að nálgast góða fjar­vinnu- og funda­að­stöðu um allt land, sem fyrir­tæki og starfs­fólk getur leigt eftir sínum þörfum.“

Þróunin ætti hins vegar ekki að­eins að vera á for­sendum einka­fyrir­tækja heldur þarf hið opin­bera að vera sveigjan­legra í sínum skrif­stofu­málum. Í stað þess að verja skatt­peningum í að kaupa eða leigja hús­næði til ára­tuga dýrum dómum gæti ríkið þess í stað gert samninga við fyrir­tæki sem reka fjar­vinnu­að­stöðu. Það myndi auka allan sveigjan­leika og gefa opin­berum starfs­mönnum meira frelsi í störfum sínum. Þar að auki væri það mikið byggða­mál að geta boðið fólki að starfa hvar sem það vill.

„Eins og Brian Chem­sky hjá Airbnb segir þá kippti far­aldurinn okkur inn í fram­tíðina nánast á einni nóttu. Það er okkar að grípa tæki­færin sem henni fylgja og við hjá Regus ætlum ekki að láta okkar eftir liggja,“ skrifar Tómas að lokum.