Tómas segir Arion banka í bullinu: „Kann greini­lega ekki að skammast sín“

Tómas Guð­bjarts­son, skurð­læknir og bar­áttu­maður fyrir náttúru­vernd, er undrandi á því að Arion banki vilji blása lífi í fram­kvæmdina við kísil­ver í Helgu­vík.

Kjarninn greindi frá því á föstu­dag að Stakk­berg, sem er í eigu Arion banka, hefði upp fyrir­ætlanir um að ræsa ljós­boga­ofninn að nýju. Er mark­miðið að endur­bæta verk­smiðjuna og auka fram­leiðslu­getuna.

Tómas segir í grein sem birtist á Vísi að það sé eins og Arion banka sé fyrir­munað að taka skyn­sam­legar á­kvarðanir þegar kemur að kísil­verinu. Á­kvörðunin nú sé ó­skiljan­leg og sið­ferðis­lega röng.

„Allir þekkja hörmungar­sögu United Silicon, verk­smiðju­hróaldi sem var plantað niður í Helgu­vík, nánast í í­búða­byggð. Ekki nóg með að verk­smiðjan væri sér­lega ljót heldur gerði út­blásturinn fjölda fólks, þar með talin börn, í Reykja­nes­bæ al­var­lega veikt. Þetta reyndist svika­mylla þar sem eftir­lit brást al­gjör­lega, eitt­hvað sem fjár­mögnunar­aðilinn Arion banki getur ekki firrt sig á­byrgð á og hefur kostað bankann, líf­eyris­sjóði og kúnna hans tugi milljarða. Sem betur fer var verk­smiðjunni lokað í septem­ber 2017 en síðan hefur bankinn reynt að selja ó­skapnaðinn úr landi,“ segir Tómas.

Tómas segir engu líkara en að bankinn ætli sér nú að nýta sér bág­borið at­vinnu­á­stand á Suður­nesjum vegna CO­VID-19 og ekki bara endur­ræsa heldur stækka verk­smiðjuna. „Stækkuð mun verk­smiðjan auka kol­efnis­spor Ís­lands um 10%! Ætla í­búar Reykja­nes­bæjar og Ís­lendingar að sætta sig við svona vinnu­brögð?,“ spyr Tómas sem er aug­ljós­lega ó­sáttur.

„Arion banki kann greini­lega ekki að skammast sín og gerir greini­lega ráð fyrir að fólk og fyrir­tæki haldi á­fram við­skiptum við hann - óháð fjár­festingar­stefnu. Sem ég held að sé mis­skilningur árið 2020 - enda gull­fiskaminnið ekki al­gjört.“

Grein Tómasar má lesa í heild sinni hér.