„Ég varð bara hryggur þegar ég las þetta í morgun,“ sagði Tómas Guðbjartsson, prófessor í skurðlækningum, í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Tómas var þar meðal annars spurður út í forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag þar sem greint er frá því að læknastofur og skurðstofur Domus Medica loki frá næstu áramótum. Þetta eru mikil tíðindi en 70 sérfræðingar eru með læknastofur á Domus Medica.
Jón Gauti Jónsson, framkvæmdastjóri Domus Medica, segir við Morgunblaðið að ríkisvæðingarstefnan sem ríkisstjórnin hefur rekið í fjögur ár vinni ekki með þessari starfsemi.
„Menn treysta sér ekki til að halda áfram í því ástandi sem hefur ríkt í stjórnun heilbrigðisþjónustunnar nokkuð lengi,“ sagði hann meðal annars.
Tómas var nokkuð ómyrkur í máli í Bítinu og sagði meðal annars: „Ég held að það séu arkitektar á bak við þetta sem ættu að skoða sinn gang.“
Þegar Heimir Karlsson þáttastjórnandi spurði hvort hann ætti við heilbrigðisráðherra og aðstoðarmann hennar, Birgi Jakobsson, sagði Tómas: „Ég get ekki fullyrt það en hann hefur talað þannig.“