Tómas Þór Þórðarsson, formaður samtaka íþróttafréttamanna, er allt annað en sáttur með ákvörðun KSÍ aðspila vináttuslandsleik við Sádí arabíu í Abu Dhabi í nóvember.
Margir telja ákvörðun KSÍ óskiljanlega enda Sádí Arabía þekkt fyrir fjölmörg mannréttindabrot og eru allar líkar á því að KSÍ hafi ákveðið að spila leikinn peningana vegna.
Tómas ræddi málið í útvarpsþætti Fótbolta.net á föstudag enDV greinir frá.
,,Heyrðu við erum sem þjóð að fara taka bara virkan þátt í einum mesta íþrótta hvítþvotti heims þessa dagana og spilum við Sádí-Arabíu og enginn segir neitt? Er ekki allt í lagi eða?“ segir Tómas í þættinum.
,,Ég veit ekki alveg hvar maður á að byrja með þetta. Ég er ekki maður sem mætir á einhver mótmæli og hef ekki mikið fyrir mér í svona málum en ef ég væri yfir knattspyrnusambandi Íslands og hefði fengið boð um það að spila við Sádí Arabíu í dag.. Annað hvort svararðu ekki póstinum eða segir bara nei.“
,,Þetta er bara basically versta þjóð heims í dag, mannréttindi eru ekki til þarna, þeir koma fram við konur verr en hunda. Þetta eru menn sem stunda aflimanir á föstudögum. Hefur fólk hjá KSÍ aldrei séð sjónvarpsþátt eða lesið blað? Hvað er í gangi?“
,,Vanda Sigurgeirsdóttir mætir þarna inn og tekur strax á mesta vandamálinu sem var þá í gangi, kynferðisbrot og það sem var í gangi, það sem felldi Guðna og stjórnina og gerði það listavel. Hún sýnir að það séu nýir tímar hjá KSÍ, við stöndum algjörlega með þolendum, tökum þetta regluverk alveg í gegn og gerum þetta almennilega. Við ætlum að vera nútíma knattspyrnusamband sem hugsar um þessi mál.“
,,Svo snýr hún þessu við og basically segir að knattspyrnusamband Íslands styðji ekki við kvennréttindi því við erum að fara spila leik við Sádí Arabíu. Hún afsakar það með því að hún ætli að halda ræðu og taka í höndina á þeim og sýna að Ísland sé með formann og varaformann sem eru allar konur sem er besta mál. Aftur vil ég benda á það að þetta eru menn sem hafa myrt menn, og fullt af fólki. Þeir eru að stunda mesta sports washing sem sést hefur í heiminum núna, bæði með að kaupa Newcastle United þar sem þeir komust í gegnum það. Það stoppaði ekki mikið þar svo ég held að KSÍ sé ekki að fara stoppa mannréttindabrot þeirra mikið.“
,,Við erum að leggja gildin okkar hvað varðar almenn mannréttindi til hliðar því við höfum ekki efni á að spila við annað en Sádí Arabíu. Í staðinn ætlum við að stara Sádana niður. Ég hélt frekar að hún hefði fengið póst um að spila við Sádí Arabíu og bara hlegið og sagt nei takk. Mér finnst þetta ótrúlegt.“
Hægt er að hlustaá þáttinn hér.