Tölvuþrjótarnir fylgjast með þér – og stela heila fjarfundinum

Með aukinni netnotkun þarf enn meira að hafa í huga öryggi á netinu. Þetta segir Vilhelm Bergsveinsson, en hann er viðmælandi Sigmundar Ernis í fréttaþættinum 21 í kvöld. „Áður en COVID skall á þá var kannski 30 prósent af vinnandi fólki að vinna fjarvinnu. Bara í mars þá var það komið í 60 prósent.“

Talað hefur verið um í fréttum síðustu vikur að ýmsa vankanta var að finna í öryggi fjarfundar forrita sem hafa nýst mikið í ástandinu. „Ég vil ekki vera að hallmæla einu forriti fram yfir annað en forritið Zoom hefur verið í fjölmiðlum. Þar gerðist það að fundum var einfaldlega stolið af þeirra skýjalausn. Það sem ber að varast er að læsa fundum alltaf með lykilorði.“

Hakkarar sækja í fundi þar sem rædd eru persónulegar upplýsingar eða fjármál fyrirtækja, allt eitthvað sem hægt er að selja eða múta með. „Þeir stela einfaldlega vídjóinu. Þeir aðilar sem stunda þetta eru orðnir það færir að þeir eru fljótir að finna allar öryggisholur.“

Hakkara iðnaður

Vilhelm segir hakkarasamfélagið alltof stóran og hann fer stækkandi „Ég las grein í fyrra þar sem sex hundruð vopnaðir lögreglumenn í Þýskalandi inn í gamalt NATO byrgi sem taldi einhverja fimm þúsund fermetra á fimm hæðum. Þar var bara miðstöð fyrir tölvuhakkara. Það er næstum því þannig að menn stimpla sig inn klukkan níu á morgnanna og fara í hádegismat og svo út klukkan fimm. Þeir eru í þessu allan daginn.“

Ýmist liggur fyrir fólki sem stundar tölvuglæpi. Hægt er að komast inn í tölvur og kveikja á vefmyndavélum og fylgjast með heimilisfólki við dagleg störf. „Það fer eftir því hvaða iðju þú stundar heima hjá þér, sem dæmi. Þá geta menn farið út í hótanir.“

Hvað varðar fyrirtæki þá ber að varast þegar starfsfólk eigin tölvur til að komast á innra net fyrirtækisins. „Ef það er vírus í tölvunni þá geta þeir komist á innra netið nokkuð auðveldlega. Þess vegna er mikilvægt að þegar maður er heima hjá sér með vinnutölvu að nota VPN. Það er hægt að líkja VPN við landamæravörslu, þú vilt ekki að varðstöðin sé í stofunni þinni þegar þú ert að nota fyrirtækjanetið. Með VPN getur þú notað alla þá eldveggi og vírusvarnir sem fyrirtækið er með.

Einstaklingar passa sig líka

„Við teljum okkur töluvert einangruð og hugsunin sem er svolítið sterk í þjóðarsálinni er að hugsa að þetta kemur ekki fyrir okkur. En það getur gerst.“

Vilhelm brýnir fyrir fólki að hugsa sig alltaf um áður en það opnar tölvupóst sem það á ekki von á. Einnig er hægt að lenda í því að óprúttnir aðilar horfi yfir öxl manns og skoði innslátt á tölvulyklaborð til að sjá lykilorð.

En er ástandið að skána eða versna? „Ekki að skána. Þetta er komið til að vera. Enda stækkandi iðnaður. Farandi inn í nýjan áratug þá er verið að nota hakkaraiðnaðinn til að hafa áhrif á kosningar og margt annað.“

Með auknu öryggi og skynsemi í netvafri er þó hægt að komast hjá sem flestu.