Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens greinir frá því á Facebook síðu sinni að fjölmargir séu að þykjast vera hann á Instagram.
„Í hverjum einasta mánuði er einn eða fleiri feik instagram prófílar með mínu nafni myndum af mér og fólkinu mínu búnir til,“ skrifar Bubbi og bætir við að þetta er búið að gerast í nokkur ár.
„Þið megið tilkynna þessar feik síður,“ skrifar Bubbi og bætir við að „oftast eru skilaboð a ensku eða bjagaðri íslensku.“