Kristín Sif og Yngvi Eysteins ræddu undarlegar matarsamsetningar í útvarpsþættinum Ísland vaknar í vikunni en hlustendur hringdu inn og mæltu með afar óvenjulegum matarsamsetningunum.
Meðal þeirra sem var rætt í þættinum var hrökkbrauð með kotasælu og þorsklifur, sem Yngva leyst hreint ekki illa á, rúgbrauð með smjöri og steiktum lauk, svart Dorítos-snakk með túnfisksalati, kúmen-hrökkkex með beikonosti og banönum, vöfflur með aromat og rabarbarasultu, pítsa með karamellusósu, Homeblest-kex með kavíar og Royal karamellubúðingur með hákarli.
„Ég þarf að fara inn á klósett, ég held ég þurfi að kasta upp,“ sagði Yngvi eftir að síðasti hlustandinn hringdi inn.
Hægt er að hlusta á þáttinnhér.