Tók saman það sem fullorðna fólkið hafði að segja vegna eineltismálsins | „Ég spyr aftur. Hvernig gengur okkur?“

Birgir Örn Guðjónsson, lögreglumaður í Hafnarfirði, segir fullkomlega eðlilegt og í raun ágætt að fólki bregði við fréttir eins og þær sem við sáum í gær af eineltismáli sem nú skekur Hafnarfjörð.

Tólf ára stúlka reyndi að svipta sig lífi eftir að hafa setið undir hrottalegu einelti frá samnemendum sínum. Hafði stúlkan meðal annars verið hvött til að svipta sig lífi. Óhætt er að segja að málið hafi vakið hörð viðbrögð enda einelti eitthvað sem á ekki að líðast, hvorki í skólum né úti í samfélaginu.

„Þetta mál er sorglegra en tárum tekur og óþolandi að börn skuli upplifa slíkt. Þetta mál er samt langt frá því að vera eitthvað einsdæmi. Svona mál koma reglulega upp og mörg þeirra sjáum við aldrei vegna þess að þau eru föst inni í snjallheimi barnanna okkar,“ segir Birgir Örn sem hefur meðal annars skrifað um langvarandi áhyggjur sínar af auknu ofbeldi og vopnaburði hjá ungmennum.

„Þar ræddi ég meðal annars um vandan sem við erum að skapa þegar við erum farin að næra sjálfsmynd samfélagsins með reiðinni. Við elskum að vera reið og viljum taka öll mál í okkar hendur. Börnin okkar eru fyrsta kynslóðin sem elst upp með samfélagsmiðlum og það erum við hin fullorðnu lögðum stikurnar meðfram veginum sem þau eru að reyna að feta. Hvernig hefur okkur gengið? Hvað hafa þau lært af okkur,“ spyr Birgir Örn sem endar pistil sinn á Facebook á því að taka saman nokkrar setningar sem fullorðnir einstaklingar létu frá sér á samfélagsmiðlum og á kommentakerfum í gær.

„Þetta er bara brot af því sem var sagt. Áttum okkur á því að þarna eru fullorðnir einstaklingar að tala um börn. Vissulega gerendur í máli sem þarf að taka á, en börn engu að síður. Börn sem þurfa aðstoð og leiðbeiningu inn á rétta leið inn í restina af lífinu. Ok, vísum þeim veginn,“ segir Birgir og birtir svo ummælin sem hann rakst á:

„Hef aldrei skilið hvernig hægt er að skapa svona viðbjóðsleg kvikindi. Þetta er versta sort af öllu ógeðslegu.“

„birta myndir af gerendum á almennum áberandi stöðum miskunnarlaust, mætti hafa myndir af forræðismönnum með“

„dæma þá eins og um FULLORÐNA EINSTAKLINGA sé að ræða !“

„Berja þessa vesalinga fyrir framan alla í skólanum.“

„Það á að draga öll þessi börn í sjónvarpið og vita hvað þau hafa að segja og hvort ekki lækkaði í þeim kjafturinn.“

„Taka þessa krakka ANDSKOTA og löðrunga þá, djöfulsins viðbjóður er þessi krakka líður„

„Það vantar hérna unglingadómstól og unglinga*fangelsi*“

„Helvítis aumkunarverðu og illa innrættu börn.“

„Þetta eru heilalausir aumingjar eins og foreldrarnir.“

„Það þarf ekki að raskella þessi börn, það þarf að lemja manndóm í foreldrana líka, sóunn á súrefni þetta pakk.“

„Krakkar þurfa ađ finna þađ međ mjög skýrum hætti ađ ofbeldi hefur afleiđingar og afleiđingarnar þurfa ađ bìta hressilega helst mjög mikiđ.“

„Skítt með persónuvernd, nöfn þessara krakka og foreldra þeirra upp á borðið strax.“

„Name and shame þessa krakka og foreldra þeirra. Eina ráðið“

„Ógeðslegur skóli eru foreldrar eitthvað skrýtnir að leyfa þessu að viðgangast.“

„Setja upp opna Facebooksíðu með myndum af þessum ógeðis krakkafíflum.“

„Það þarf auðvitað fyrst og fremst að taka þessa gerendur ÚR UMFERÐ og það undireins. Það er ekki hægt að hafa svona villidýr í samfélaginu“

„Helvítis viðurstyggilega drulluhyski“

„Fara heim til þeirra og murka lífið úr pabba þeirra fyrir framan börnin“

„Guð minn góður hvað er að loka þessum skóla og taka börnin af foreldrunum“

„Meira ruglið...ég væri búin að senda hrotta á eitt og hvert þeirra og foreldra“

Birgir Örn endar pistilinn á þessum orðum: „Ég spyr aftur. Hvernig gengur okkur?“