Valdís Eva Hjaltadóttir, Blábankastjóri á Þingeyri, segir frá því í nýjasta þætti af Landanum á RÚV hvernig hún flutti hreinlega hús sitt með sér á Þingeyri þegar hún flutti í bæinn.
Í þættinum kemur fram að um sé að ræða svokallað smáhýsi, eða þrettán fermetra hús, með sex fermetra svefnlofti. Valdís hefur átt það síðan árið 2018 en fór að kynna sér smáhýsi þegar hún bjó í Danmörku.
„Síðan flyt ég frá Danmörku til Íslands í bíl, og þetta komst semsagt allt fyrir í bíl, 12 kassar og eitt hjól. Og þessi tilfinning að vera bara á hjólum, og geta farið hvert sem mig langar - þetta var rosalegt,“ segir Valdís í Landanum.
Húsið er ekki meira en 3,5 tonn að þyngd og fellur því að regluverki hjólhýsa hvað varðar hæð, lengd og þyngd. „Næsta hús er byggt á Íslandi úr trefjaplasti sem er miklu léttara og rosalega sterkt,“ segir Valdís.
Það geti því verið stærra þótt það sé áfram undir 3,5 tonni.
„Eins og núna að geta tekið starf á Þingeyri án þess að blikka,“ segir Valdís. „Hvar sem ég er þá er ég alltaf heima hjá mér.“
Horfa má hér á klippuna úr nýjasta þætti Landans á vef RÚV.