Arnar V. Arnarsson, Reykvíkingur og lögmaður, er ekki par sáttur við Reykjavíkurborg vegna veghaldi og dagvistunarúrræðum barna, segir hann íopnu bréfi sem hann birtir á vef Vísis að hugsanlega beri borgin ábyrgð á skemmdum á bíl hans.
Hann á 12 mánaða son sem erfiðlega gekk að koma að hjá dagforeldri.
„Í þeirri viðleitni að reyna tryggja að sonur okkar kæmist að hjá dagmóður ýmist hringdi ég persónulega eða sendi sms á ALLAR dagmæður sem eru skráðar á höfuðborgarsvæðinu – rúmlega 100 talsins, og bað um pláss. Það var ekki eitt laust pláss að fá,“ segir Arnar.
Lukkulega komst hann á biðlista og loksins að hjá dagmóður.
„Dagmóðirin sem tók við syni okkar, bókstaflega sú eina á höfuðborgarsvæðinu sem okkur bauðst (og lukkulega alveg einstaklega góð dagmóðir), býr í Árbænum. Sjálf búum við í Rauðalæk og vinnum bæði í göngufæri við heimilið.“
Einfaldast væri að vera með vistun nærri heimili þeirra, þá væri hægt að fara gangandi. „Um veghaldið er nefninlega það að segja að í morgun er við ókum syninum til dagmóður sem er staðsett sem áður segir í Árbæ, festist ökutækið í götunni sem liggur að heimili dagmóðurinnar. Gatan er í raun lítið annað en gríðarinnar klakabúnt með miklum og djúpum holum,“ segir Arnar.
„Gatan hefur samkvæmt íbúum á svæðinu verið algjörlega vanrækt af Reykjavíkurborg sem skýlir sig að sögn íbúanna bakvið það að hafa gert samning við einkaaðila um að annast tilteknar götur, þessa þar með talda. Allar þær ábendingar og ítrekanir hafi þó borgaryfirvöld látið sem vind um eyru þjóta.“
Arnar hefur beint erindi sínu til borgarinnar:
„Ökutækið okkar festist svo verulega að það tók fjóra menn, sem lukkulega áttu leið hjá eftir að ég hafði sjálfur reynt í dágóðan tíma að grafa bílinn úr klakanum og höggva undan honum ísinn, tæplega klukkustund að leysa ökutækið úr holunni og koma því úr götunni. Þess skal getið að við reyndum að hringja strax í Reykjavíkurborg til að láta vita og óska aðstoðar og fengum þau fyrirmæli ein að senda þeim erindi.“