Það eru ef til vill fáar konur í heiminum sem eru í betra formi en Crossfit-stjarnan Sara Sigmundsdóttir. Sara er að koma sér aftur í stand eftir erfið krossbandameiðsl í hné og virðist hún vera á býsna góðri leið eins og lesendur Insider fengu að kynnast – sem og pistlahöfundurinn Rachel Hosie.
Hosie skrifaði skemmtilega grein í gær þar sem hún lýsti æfingu sem hún tók með Söru á dögunum. Hosie segist sjálf vera í nokkuð góðu formi og bendir á að hún æfi sex sinnum í viku – nokkuð oftar en meðalmaðurinn. Þrátt fyrir það gat hún ekki með nokkru móti haldið í við Söru á æfingunni.
Í pistli sínum tekur Hosie það fram að Sara hafi verið búin með fjögurra tíma æfingu áður en hún mætti á svæðið. Sara hafi spurt hana hversu langa æfingu hana langaði að taka og stungið upp á klukkutíma. „Kannski aðeins minna lagði ég til,“ segir Hosie og segist hafa verið ánægð með þá ákvörðun að æfingu lokinni.
Æfingin sem þær tóku var dæmigerð Crossfit-æfing, svokallað AMRAP (As Many Rounds As Possible), þar sem viðkomandi reynir að taka eins margar umferðir af tiltekinni æfingu á ákveðnum tíma. Æfingin sem þær tóku var 20 mínútur og samanstóð hver umferð af róðri, göngu á höndum eða armbeygjum, framstigum með lóð og „burpees“.
Það er skemmst frá því að segja að Hosie hreyfst mjög af Söru og því ótrúlega formi sem hún er í. Viðurkennir hún að Sara hafi „gjörsamlega rústað henni“ eins og hún orðar það.
„Hún er í frábæru formi en það sem hreif mig mest var ákveðnin, eldmóðurinn og andlegi styrkurinn,“ segir Hosie í grein sinni. Hún segir að ekki hafi liðið á löngu þar til Sara var komin heilan hring á undan henni og þegar hún minntist á það hafi Sara sagt: „Ef þú getur talað, þá ertu ekki að leggja nógu mikið á þig.“
Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér.