Tobba var í fjallgöngu og fékk rauðar viðvaranir í símann - Ekki var allt sem sýndist

Þúsundþjalasmiðurinn Þorbjörg Marínósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marínós, skrifar um allsherjar tækni- og snjallvæðingu sem hefur náð stjórn á lífi okkar í Bakþönkum Fréttablaðsins í morgun.

„Við hjónin teljum okkur vera vel skipulögð, ég með meistaragráðu í verkefnastjórnun og hann tölvunarfræðingur. Það er því nokkuð viðbúið að snjallvæðing hafi átt sér stað innan veggja heimilisins – með einstaka innköllun. Ég bað eiginmanninn til dæmis að taka snjallperuna af baðherberginu eftir að skynjaradurgurinn taldi mig af ef ég var of lengi að pissa. Svo flutti Alexa inn og starfar nú sem innkaupastjóri, tónlistarstjóri, leikjastjóri og sérleg prumpueftirherma. Hún fór í fýlu í vikunni og neitaði að kveikja á öðru en breskum upplestri um seinni heimsstyrjöldina. Líklega of margar prumpubeiðnir.“

Þetta skrifar Tobba, sem síðan víkur sér að göngu sem hún fór í ásamt eiginmanni sínum um hinn fræga og glæsilega Fimmvörðuháls. Fjallaganga þessi var trufluð með rauðum viðvörunarbjöllum.

„Í viðleitni okkar hjóna til að tengjast náttúrunni á ný eftir snjallfaraldur skildum við Alexu eftir heima og gengum Fimmvörðuháls, með fullhlaðna síma, heyrnartól, snjallúr, auka hleðslustaut og stíliserað sykurlaust og glútenlaust nesti. Og auðvitað í tæknilegum göngufatnaði sem andaði. Dásamlegt veður og við að núvitunda okkur í drasl í beinni á Instagram.

Svo allt í einu fara báðir símarnir að pípa án afláts. Rauða Securitas-merkið blikkaði reiðilega. Þjófavarnarkerfið var farið í gang og það fyrir góðum 10 mínútum þegar við vorum netlaus.“

Tobba segir að í kjölfarið hafi hún leitað að símasambandi og velt fyrir sér hver skyldi vera að brjótast inn um hábjartan dag. Hún komst síðan að því að ekki var allt sem sýndist.

„Og nú hófust hlaupin í leit að símasambandi. „Hver brýst inn um miðjan dag?“ kalla ég á hlaupunum – núvitundin á milljón. Stekk upp á stein og rek símaskrípið upp til lofts. Sé fyrir mér dónaþjófa rassa svefnherbergisveggina og brjóta góða stellið. Kalli horfir á snjallúrið og svo sorgmæddur á mig.

„Hvað gerist á okkar heimili alla daga klukkan 12? Helvítis ryksugu­róbotinn!“

„Ó,“ svara ég og rifja upp að útkallið á öryggisverði kostar sirka 20.000.“