Tobba segir það Jóni Steinari að kenna að maðurinn sem braut gegn henni slapp

„Ég er ekki að vekja athygli á þessu máli í biturð eða reiði heldur til þess að benda á að kerfið okkar sannarlega virkaði þarna framan af – alveg þangað til að Jón ákvað að kippa því úr sambandi með því að bjóða manninum út bakdyrameginn korteri fyrir dómsuppkvaðningu.“

Þetta segir Tobba Marinósdóttir, ritstjóri DV, í mjög svo athyglisverðri grein sem birtist á vef Vísis í dag. Þar vandar hún Jóni Steinari Gunnlaugssyni, hæstaréttarlögmanni og fyrrverandi hæstaréttardómara, ekki kveðjurnar og segir raunar að það sé honum að kenna að maður sem braut á Tobbu hafi ekki verið refsað fyrir brot sitt.

Umdeild ákvörðun Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um að fela Jóni Steinari að veita ráðgjöf um endurbætur á réttarkerfinu hefur vakið athygli.

Tobba bendir á að Jón sé umdeildur, sérstaklega í kynferðisbrotamálum, þar sem sératkvæði hans hafa vakið reiði meðal fólks.

„En málið snýst ekki um kynferðisbrot heldur dómgreind mannsins sem um ræðir. Fyrir rúmum 11 árum varð ég fyrir kynferðisofbeldi. Gerandinn var Bandaríkjamaður og hefði átt að fara úr landi innan við sólarhring eftir að hann var handtekinn.“

Tobba kveðst hafa safnað saman öllum hennar andlega styrk og með hjálp góðs fólks stóð hún með sjálfri sér og kærði manninn. „Hann var í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald og svo síðar, þegar honum var sleppt úr því, í farbann.“

Átta dögum áður en kveða átti upp dóm í manninum hafði manninum verið haldið nauðugum hér á landi í 66 daga. „Farbannið yfir honum átti að vara í 11 daga í viðbót við þessa 66 – það er að segja í þrjá daga fram yfir dómsuppkvaðningu.“

Tobba bendir á að enginn framsalssamningur sé í gildi milli Íslands og Bandaríkjanna og því ljóst að ef að farbanninu yrði aflétt myndi viðkomandi ekki sitja af sér dóminn.

„Þrír dagar voru í áætluð málslok þegar gerandinn kærði farbannið. Jón Steinar Gunnlaugsson, þáverandi hæstaréttardómari, fær málið á borð til sín en aðrir dómarar voru Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson.“

Tobba segir að Jón Steinar hafi ekki haft aðra aðkomu að málinu og var ekki dómari í aðalmeðferð málsins sem átti að ljúka þremur dögum síðar.

„Jón Steinar hnoðar þá saman í eitt af sínum frægu sératkvæðum þar sem hann segir að ekki sjái hann að rökstuddur grunur sé fyrir hendi að sakborningur hafi gerst sekur um þá háttsemi sem um ræðir. Jón Steinar og Ólafur Börkur (í óþökk Viðars) fella því farbannið úr gildi. Ólafur Börkur hafði þá áður með sératkvæði reynt að fá farbannið fellt úr gildi en hafði ekki erindi sem erfiði fyrr en Jón Steinar var fenginn að borðinu.“

Tobba segir að ofbeldismaðurinn hafi þarna verið orðinn þreyttur á að hanga á einu dýrasta hóteli landsins og í líkamsræktarstöð á víxl og var hann fljótur að láta sig hverfa. Enda þrír dagar í að aðalmeðferð lyki og átta dagar í dómsuppkvaðningu.

„Átta dögum seinna er hann sakfelldur – en er þá á bak og burt og engin von um að fá hann framseldan. Eftir því sem ég kemst næst er einnig mjög ólíklegt að nokkuð um dóminn muni birtast á sakaskrá mannsins, sem er háttsettur í bandaríska hernum, en ég hef þó ekki getað fengið skýr svör þess efnis frá utanríkisráðuneytinu né bandaríska sendiráðinu.“

Tobba segist í grein sinni ekki vera að vekja athygli á málinu í biturð eða reiði heldur vill hún benda á að kerfið okkar virkaði framan af, eða þar til Jón Steinar kom að borðinu.

„Gerandinn ákvað að áfrýja málinu engu að síður, hann hafði næg fjárráð og vissu um að hann þyrfti hvort eð er ekki að sitja af sér. Málið endaði þó á þann veg að dómurinn var fjórfaldaður og hann dæmdur í tveggja ára fangelsi. Sem hann hefur aldrei þurft að afplána.“

Grein Tobbu má lesa í heild sinni hér en sem fyrr segir vandar hún Jóni Steinari ekki kveðjurnar. Hún segir að hann sé ekki undir nokkrum kringumstæðum maðurinn sem ætti að kalla til til þess að lagfæra réttarkerfið.