Þúsundþjalasmiðurinn Þorbjörg Marínósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marínós, skrifaði pistil um sorg sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Þar sagði hún vont að sjá hversu mikið fólk virðist forðast þessa tilfinningu sem eflaust allir munu þurfa að upplifa á lífsleiðinni.
„Það er vont hvað fólk hræðist sorg. Það er engu líkara en sá sem syrgir sé sýktur og því beri að forðast náið samneyti. Því jú vissulega er vont að sjá fólk þjást og það veldur því að áhorfandanum líður illa.
Skilaboðin virðast því vera að best sé að forða sér í matvöruverslun þegar sorgin svífur fram hjá í næsta rekka.“
Tobba segir skiljanlegt að fólki finnist óþægilegt að takast á við sorg annara, en hún segir að við veðrum að takast á við það, enda snúist málið ekki um okkur sjálf heldur þann sem syrgir.
„Þetta er að vissu leyti skiljanlegt en um leið óþolandi roluháttur sem við höfum allt of mörg gerst sek um.
Að taka á sig rögg, hversu óþægilegt sem það er, staldra við, ákveða að vera vel gerð manneskja og ganga yfir götuna eða í næsta rekka, horfa í augu vinar eða vinkonu, sem er að upplifa helvíti á jörð, og segja ég samhryggist þér, er líklega eitt það manneskjulegasta sem við getum boðið upp á í samskiptum.
Þessi orðaskipti taka sekúndur, eða mínútur og þú munt aldrei sjá eftir því, öfugt við það að stinga höfðinu ofan í símann í röðinni í búðinni til að forðast augnsamband.
Og já, kannski fer viðkomandi að gráta og það er óþægilegt fyrir þig – en þetta snýst ekki um þig.“
Pistill Tobbu endar síðan á þessum fallegu orðum:
„Þetta snýst um að vera manneskja með hjarta.
Vera manneskja sem börnin manns geta lært af.
Ekki hlaupast undan.
Því það er vont að vera einn og sorgmæddur.
Já, og vinsamlegast ekki spyrja aðstandendur hvort að sá sem hefur nýlega misst einhvern nákominn, maka eða barn, sé að „hressast“.
Sorg er ekki flensa.
Hún er helvíti sem enginn hressist af heldur lærir að lifa með.
Og lífið er síðra.“
Hér má lesa pistillinn hennar Tobbu