Tobba Marinós skelfingu lostin í skimun: Börn og fólk með smit - allir saman

Tobba Marinós, eigandi Granólbarsins og fyrrverandi ritstjóri, undrast skipulagsleysi við Covid-skimanir á Suðurlandsbraut.

„Guð minn góður,“ skrifar Tobba sem var í röðinni fyrr í dag á Facebook. „Mörg hundruð manns í röð í haglél á Suðurlandsbraut og upp allan Ármúlann. Börn á öllum aldri og fólk með staðfest smit - allir saman,“ lýsir hún stöðunni.

Tobba telur að skipuleggja mætti sýnatökuna betur. „Af hverju er ekki önnur röð fyrir börn og viðkvæma hópa svo ekki sé minnst á alla þá sem eru með einkenni og drullulasin?“ spyr hún.

Fyrirkomulagið telur Tobba munu leiða til þess að þeir sem ættu að fara í skimun geri það ekki. „Ég er hrædd við hversu margir munu hætta við að fara í röðina,“ skrifar hún á Facebooksíðu sína.