Haukur Heiðar bendir á sturlaða staðreynd á Twitter í dag þegar hann tekur Wente hvítvínið sem kostar um 10 dollara út úr búð í Bandaríkjunum eða 1.280 krónur en er farið að slá í fjögur þúsund krónur út úr ÁTVR.
Þrátt fyrir mikla umræðu um veiðigjald sem skilar um fjórum milljörðum til ríkisins er minni umræða um áfengisgjald sem skilar ríkinu örlítið meira en 20 milljörðum á ári. Í umræðum við tístið er bent á að 700ml Smirnoff vodkaflaska sé tvöfalt dýrari hér á landi en í Systembolaget í Svíþjóð.
Svarar Haukur Heiðar þá. „málið er að þetta er eðlilegt vegna aðflutningsgjalda og skatta. Umhverfið er galið.“
Það orðið andskoti hart að rúmlega 10$ vín séu að skríða í 4þús kallinn 🥵 pic.twitter.com/WMofd2aLuI
— Haukur Heiðar (@haukurh) September 8, 2021