Titringur vegna ofurhagnaðar: Gríðarleg auðsöfnun á mjög fáar hendur

Það stefnir í methagnað sjávarútvegsfyrirtækja, að því er fram kemur í forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag. Þannig er greint frá því að Brim hafi hagnast um 11,3 milljarða í fyrra og Síldarvinnslan um svipaða fjárhæð.

Þá nemur hagnaður Síldarvinnslunnar fyrstu þrjá mánuði þessa árs nam á fjórða milljarð króna.

Í umfjöllun Fréttablaðsins kemur fram að Samherji, Kaupfélag Skagfirðinga (KS) og önnur risafyrirtæki í íslenskum sjávarútvegi, hafi ekki skilað uppgjöri fyrir síðasta ár en mikils hagnaðar er vænst.

Aflaverðmæti hefur aukist töluvert milli ára og munar þar mestu um uppgrip í síld og loðnu og þá hefur verð á fiski hækkað eftir innrás Rússa í Úkraínu.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingar, segir að arðurinn fyrir aðgengi að takmörkuðum auðlindum í eigu þjóðarinnar verði í auknum mæli að skila sér til þjóðarinnar.

„Við höfum horft upp á gríðarlega auðsöfnun á mjög fáar hendur sem hefur auk þess leitt til þess að örfáir einstaklingar halda ekki einungis á þorra fiskveiðiheimilda, heldur hafa í skjóli þessa sama auðs sölsað undir sig eignir mjög víða í samfélaginu í óskyldum greinum,“ segir Logi.

Hann nefnir fjölmiðlarekstur, fasteignastarfsemi, flutninga, dagvörumarkað, orkuvinnslu, jafnvel tryggingar og bankastarfsemi.

„Þetta skapar mjög óheilbrigt ástand. Og nú þegar allur þorri almennings sér fram á versnandi afkomu og ýmis heilbrigðis- og velferðarþjónusta er undirfjármögnuð, ættu handhafar kvótans sannarlega að greiða meira til samneyslunnar, þeir eru vel aflögufærir, svo ekki sé meira sagt,“ segir Logi.

Nánar má lesa um þetta á vef Fréttablaðsins.