Samningur biskups Íslands við Ásdísi Clausen, fyrrverandi fjármálastjóra Biskupsstofu, er til skoðunar hjá utanaðkomandi lögfræðingi.
Fréttablaðið greinir frá þessu, en þar segir að samningurinn sé ígildi hátt í tuttugu milljóna króna án vinnuframlags. Auk þess kemur fram að titringur sé innan þjóðkirkjunnar vegna málsins og að samningurinn sé umdeildur.
Um er að ræða samning við Ásdísi sem felur í sér óskoraðan rétt til launa í sjö mánuði, hátt í tuttugu milljónir króna, án tillits til ástæðu loka ráðningarsamnings. Í viðauka við ráðningarsamning Ásdísar segir að ekki yrði óskað eftir vinnuframlagi hennar í þessa sjö mánuði.
Samningurinn var undirritaður 1. febrúar á þessu ári af Agnesi og Ásdísi, sem sagði svo upp störfum 1. september.
Nánar er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins.