Skoska fyrirtækið Skyrora skaut fyrr í mánuðinum á loft tilraunaeldflaug frá Sauðanesi á Langanesi, norðan við Þórshöfn og hefur um hríð stefnt að frekari verkefnum hér á landi. Eldflaugarskotið var unnið í samvinnu við Geimvísinda- og tækniskrifstofuna nyrðra. Könnunarsafnið á Húsavík verðlaunaði Skyrora fyrir verkefnið og í þættinum 21 í kvöld er rætt við Örlyg Hnefill Örlygsson, safnstjóra fyrir norðan.
Við sama tækifæri grísk-kanadíska landkönnuðinn George Kourounis, auk Jeff Blumenfeld og dr. Ulyana Horodyskyj fyrir störf að landkönnun. Þetta er er í sjötta sinn sem safnið á Húsavík veitir verðlaun sín, kennd við landkönnuðinn Leif Eiríksson.
Samvinna við Skyrora skapar störf fyrir norðan og segir Örlygur Hnefill fleiri verkefni bíða enda tilraunir í geimrannsóknum heppilegar á norðurslóðum. Fleiri hefðbundnari atvinnugreinar eins og landbúnaður sér fram á að geta nýtt sér þekkingu sem kemur frá slíkum verkefnum.