Stafræna auglýsingastofan The Engine hefur verið tilnefnd til verðlauna í 7 flokkum á Evrópsku leitarverðlaununum (e. European Search Awards) 2023, fyrir verkefni sem unnin voru fyrir Reykjavík Excursions og þýska UT-fyrirtækið Demicon.
Um er að ræða stærstu stafrænu markaðsverðlaun sem veitt eru í Evrópu. Hundruð auglýsingastofa frá yfir 40 löndum taka þátt í keppninni á hverju ári og heildarfjöldi innsendinga hleypur á þúsundum. Samkeppnin um hverja tilnefningu er því afar hörð.
„Ég er orðlaus yfir þessum árangri og heiðri sem okkur er sýndur með þessum fjölda tilnefninga. Við erum sérstaklega ánægð fyrir hönd okkar frábæru viðskiptavina í Reykjavik Excursions og svo þýska UT-fyrirtækisins Demicon. Þessi verðlaun eru þau allra stærstu í stafræna markaðsheiminum í Evrópu í dag og sérstakur heiður að upplifa að vera með þeim allra bestu í Evrópu. Okkar hæfa starfsfólk á mikinn heiður skilið,“ segir Hreggviður S. Magnússon, framkvæmdastjóri The Engine.
Stofan veitir ráðgjöf með stafræna markaðssetningu með áherslu á leitarvélar, samfélagsmiðla og meðhöndlun gagna. The Engine er með starfsstöðvar í Kaupmannahöfn, Oslo og Reykjavík. Stofan er hluti af Pipar\TBWA.