Tillaga Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands, þess efnis að ekki verði innheimt gjald fyrir leikskóladvöl, grunnskólamáltíðir og frístundastarf á vegum borgarinnar hjá fátækustu íbúum borgarinnar var felld í borgarstjórn á dögunum.
Tillagan fól í sér að fyrrgreind þjónusta yrði gjaldfrjáls fyrir þá sem eru með minni tekjur en lágmarkslaun, en lágmarkstekjur fyrir fullt starf miðast nú við 351 þúsund krónur á mánuði.
„Á meðan tekjur öryrkja, fólks á fjárhagsaðstoð og annarra lágtekjuhópa eru svo lágar, samþykkir Reykjavíkurborg að gjaldtaka fari ekki fram fyrir þá þjónustu sem hún veitir til barna þeirra,“ sagði í tillögunni sem var felld með tólf atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands, Miðflokksins og Flokks fólksins. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Eftir að tillögunni var hafnað lagði Sanna Magdalena fram eftirfarandi bókun:
„Fulltrúi sósíalista telur að þessi þjónusta eigi að vera gjaldfrjáls fyrir öll börn. Slíkar tillögur hafa ekki hlotið brautargengi og nú var leitast við að afnema gjaldtökuna hjá tekjulægstu borgarbúunum. Það var ekki meirihluti fyrir því.“
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, sagði í bókun sinni að flokkurinn styðji allar tillögur sem styðja við bakið á fátæku fólki. Flokkurinn hefði lagt fram mýmargar sambærilegar tillögur en þær ýmist verið felldar eða vísað frá.