Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður og Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokk fólksins, eru báðar allt annað en sáttar með tillögu Dags B. Eggertssonar í borgarráði.
„Tillaga borgarstjóra sem var lögð fram í borgarráði fyrir tveimur vikum um að leggja niður Borgarskjalasafn og skýrsla KPMG sem fylgdi tillögunni kom eins og reiðarslag fyrir flesta,“ skrifar Kolbrún í Fréttablaðið.
„Málinu var frestað í borgarráði og leynd hvíldi því áfram yfir gögnum. Engu að síður hafði skýrsla um framtíðarfyrirkomulag Borgarskjalasafns borist fjölmiðlum og málið komst í hámæli. Nú hefur leynd verið létt af skýrslunni um Borgarskjalasafn svo hægt er að ræða efni hennar. Skýrsluhöfundar komast að þeirri niðurstöðu að: „Óbreytt ástand er ekki möguleiki,“ sem þýðir að ekki sé hægt að hafa Borgarskjalasafn áfram í þeirri mynd sem það er,“ heldur Kolbrún áfram.
Kolbrún segir hér er ekki um neina stefnumótunarvinnu að ræða heldur er aðeins keyrt áfram og yfir alla sem málið varðar. Skýrslan er almennt neikvæð og flest gert til að láta safnið líta illa út.
„Þrátt fyrir að hafa verið fjársvelt lengi heldur safnið úti öflugri starfsemi, tekur við eldri skjölum, varðveitir þau og svarar fyrirspurnum. Heildarsafnkostur Borgarskjalasafns er yfir tíu km. Birtar hafa verið á þriðja hundrað þúsunda síðna af skjölum á vefsíðu safnsins sem verið er að endurgera.“
Kolbrún segir þetta sýna metnaðarleysi meirihluta borgarstjórnar að treysta sér ekki til að halda úti vönduðu héraðsskjalasafni en allar höfuðborgir landa í Evrópu eru með borgarskjalasöfn. „. Hávær mótmæli eru um áformin og telur Flokkur fólksins að borgarstjóri eigi umsvifalaust að draga þessa tillögu til baka og biðja starfsfólk Borgarskjalasafns afsökunar.“
Svanhildur borgarskjalavörður skrifar einnig um málið á Vísi í dag en borgarráð um afgreiða tillöguna í dag.
„Borgarskjalasafn mun ekki renna saman við Þjóðskjalasafn samkvæmt tillögunni, ekki sameinast, heldur verður Borgarskjalasafnið lagt niður og skjölum þess og verkefnum skipt á milli aðila, án þess að það liggi nánar fyrir og án þess að Borgarskjalasafn sjálft fái að koma þar að. Óljósar hugmyndir eru um að Borgarsögusafn taki við miðlun og útibú Borgarbókasafns taki við afgreiðslu úr skjölunum, þar á meðal oft flóknum aðgangi fræðimanna, flóknum leitum fyrir skrifstofur Ráðhúss og aðgangi að barnaverndarmálum,“ skrifar Svanhildur.
„Engin tímalína liggur fyrir, engin greiningarvinna, engin verkefnaáætlun, engar tölur frá ríkinu um hvað pakkinn kosti. Eina tölurnar sem hafa komið fram er að borgin þurfti að borga fyrir sendiferðabíla og geymslugjald. Ekki er vitað hvort ríkið sé til í að taka við safninu og kosta verkefni þess.“
„Fram hefur komið að borgarstjóri leggur fram tillöguna í sparnaðarskyni en starfsemi Borgarskjalasafns kostar um 175 milljónir af ári, þar af eru 60 milljónir húsaleiga til borgarinnar, tölvugjald til borgarinnar 7 milljón og laun tæplega 100 milljónir. Ekki er þá mikill afgangur.“
„Borgaskjalasafn er ánægt í húsakynnum sínum í Grófarhúsi en borgin hefur samþykkt að safnið þurfi að flytja út úr húsinu til að rýma fyrir stærra bókasafni. Kostaður við nýtt húsnæði af þeim sökum er ekki hægt að skilgreina sem kostnað við skjalasafnið.“
Á Borgarskjalasafni starfa 11 sérfræðingar við sérhæfð verkefni. Svanhildur segir safnið sé á fullri ferð í stafrænni miðlun sem verður nú á nýjum vef, verið er að kortleggja og afgreiða tilkynningar um rafræn kerfi.
„Ekkert samráð hefur verið haft við borgarskjalavörð eða starfsmenn safnsins um tillöguna og borgarstjóri hefur ekki komið á fund starfsmanna til þess að skýra málið nánari og hvað taki við hjá þeim eftir að safnið hefur verið lagt niður. Borgarskjalavörður fékk fyrst að sjá tillögu um niðurlagningu safnsins 5 dögum eftir að hún var lögð fram.“
„Leyndin sem hefur hvílt á tillögunni og öllum málatilbúningi hefur orðið til þess að skapa óvissu hjá starfsfólki Borgarskjalasafns, borgarstofnunum og almenningi. Fólk spyr starfsmenn hvað verði um okkur og skjölin. Borgarskjalasafn varðveitir skjöl um næstum alla Reykvíkinga, margt af því viðkvæmar upplýsingar. Það má ekki vera óvissa um hvað verði um skjölin og hvernig aðgangi að verði háttað.“
Hægt er að lesa grein Svanhildar hér.