Almannatengillinn Andrés Jónsson kveikti alls kyns elda á Twitter á dögunum er hann stakk upp á því að rýmka heimildir barna til vinnu.
„Tillaga: Rýmkum heimildir krakka á aldrinum 12-18 ára til að vinna.
- Það vantar fólk í verslun, veitingar og þjónustu.
- Þau og foreldrar þeirra myndu gjarnan vilja fá létta sumarvinnu fyrir þau.
- Verndun táninga frá því að þurfa/mega vinna hefur gengið aðeins of langt,“ skrifaði Andrés á Twitter.
Hátt í 400 manns hafa lækað færslu Andrésar en hann bætir sjálfur við að hann fékk fyrstu sumarvinnuna sína 12 ára. „Vann á lagernum hjá 66N. Var afspyrnu lélegur starfsmaður. En lærði margt og var stoltur af mér,“ skrifar Andrés.
Ekki eru allir hins vegar sammála Andrési og vilja margir að börn fái að vera börn í friði en sumar ganga enn lengra og saka Andrés um að vilja endurvekja barnavinnu eins og þekktist á árum áður,
Ég fékk fyrstu sumarvinnuna mína 12 ára. Vann á lagernum hjá 66N. Var afspyrnu lélegur starfsmaður. En lærði margt og var stoltur af mér.
— Andrés Jónsson (@andresjons) May 21, 2022
Ertu í einhverju missjóni þar sem planið er að finna mesta rugl allra tíma?
— Thorvaldur Sverrisson (@Valdikaldi) May 21, 2022
Barnið mitt er 12 ara og þrair að fa að vinna. Buin að suða um það i meira en ár😅
— Hildur Gunnarsdottir (@hildur777) May 22, 2022
Af því það er ódýrt. Þú þarft ekki að borga börnum jafn há laun. Svo er ekkert mál að ljúga að börnum og koma í veg fyrir að þau viti réttindi sín.
— Kötturinn (@AtliKisi) May 23, 2022
Almennur vinnumarkaður er enginn staður fyrir börn. Núverandi reglugerð er alls ekki of stíf. Misnotkun og ofbeldi af fjölbreyttum toga bíður þeirra á mörgum vinnustöðum af bæði yfirmönnum og óvönduðu starfsfólki þar.
— Heiðar |🌻🌸🦋 (hann/he) (@heidarkness) May 22, 2022
ég var með nokkrar sumarvinnur þegar ég var krakki og mjög ungur táningur, það sökkaði. 0/10 mæli ekki með, það er alveg nóg að fullorðið fólk þurfi að þjást, það er frekar langt gengið að ýta þessari þjáningu til barna og unglinga https://t.co/2EWL22UuH8
— Kolbeinn Máni Hrafnsson 🏴🏴☠️Ⓐ (@KolboKolb) May 23, 2022

las einhversstaðar um daginn að við sem samfélag værum bara ca korter frá því að rebranda child labor sem frelsi eða eitthvað og viti menn það var rétt https://t.co/k8IYesRQia
— ⚔️ elísabet (@jtebasile) May 21, 2022
Ekki eru þó allir ósammála Andrési og eru fjölmargir sem styðja tillöguna.
Mikið er ég sammála. Frábært að leyfa ungu fólki að vinna (eins og hentar hverjum og einum). https://t.co/qS9dNrHJ3F
— Gisli F. Valdorsson (@gislivaldorsson) May 22, 2022
Minn 12 ára þráir að fá að sækja kerru út á bílastæði eða fylla á ávaxtakælinn í Krónunni og fá vasapening til að kaup sér takkaskó í sumar. Ég þrái að hætta að tuða um hann um heimilistörf fyrir vasapening. Win-Win
— Björt Ólafsdóttir (@bjortolafs) May 23, 2022

Já! Vann öll mín unglingsár (sumur, jól, páska og helgar) og hafði gríðarlega gott og gaman af því og gat keypt mér allt sem mig langaði í. Hafði 100% frumkvæði að því, ekki foreldrar mínir - var komin með hærri árslaun en móðir mín grunnskólakennarinn 17 ára.
— Oddný Anna Björnsdóttir (@Oddny_Anna) May 23, 2022