Til­finninga­þrungin stund er úkraínsku fjöl­skyldurnar lentu: „Ferða­lag undir sprengju­gný með börnin“

Það var til­finninga­þrungin stund á Kefla­víkur­flug­velli í gær þegar tvær fjöl­skyldur frá Úkraínu komu til landsins eftir að hafa flúið heimili sín í Úkraínu vegna inn­rásar Rússa sem hófst fyrir rúmri viku.

„Það var blanda af létti og ein­hvers konar fögnuði þarna langt undir yfir­borðinu en um leið var þetta það erfiðasta sem ég hef á ævinni gert,“ segir Sveinn Rúnar Sigurðs­son, læknir, sem tók á móti fjöl­skyldunum á­samt konu sinni í gær.

„Önnur þeirra er eigin­kona bróður konu minnar sem er ís­lenskur ríkis­borgari en er frá Úkraínu og starfar hér sem læknir í þágu Ís­lendinga. Hin konan er vin­kona hennar og barn sem ég kann ekki mikil deili á en að sjálf­sögðu opnuðum við heimilið okkar fyrir þeim öllum,“ segir Sveinn í sam­tali við Frétta­blaðið.

Sveinn segist aldrei hafa búist við að þurfa upp­lifa við­líkan harm ást­vina á Evrópskri grundu og nú. Við­brögð kvennanna hafi verið eins og við var að búast.

„Þær voru báðar í á­falli og það braust út með mis­munandi hætti, önnur var stjörf og hin var buguð,“ segir Sveinn og það er ljóst að honum þykir erfitt að ræða þetta.

„Að heyra hana lýsa þessu ferða­lagi undir sprengju­gný með börnin á ver­gangi – þetta er ó­lýsan­legur harm­leikur og þjáning.“

Eiginmaðurinn aldrei haldið á byssu

Eigin­menn kvennanna og feður barnanna voru ekki með í för á Kefla­víkur­flug­velli í gær.

„Um klukku­tíma áður en þau fóru yfir landa­mærin þá var til­kynnt um þessa her­kvaðningu sem tekur til allra karl­manna frá 18 til 60 ára. Við fengum þær fregnir rétt fyrir komu þeirra í gær að alla­vega eigin­maður annarrar, bróðir eigin­konu minnar, væri kominn í herinn,“ segir Sveinn.

„Þetta er maður sem fram­leiðir glugga og á tvö lítil kaffi­hús og hefur aldrei haldið á byssu. Staðan er skrýtin, ó­heil­brigð og á ekki að líðast á 21. öldinni.“

Hægt er að lesa við­talið við Svein og fjöl­skyldurnar í heild sinni hér.