Landsréttur vísaði í gær kæru Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns frá Héraðsdómi Norðurlands eystra sem hafði komist að þeirri niðurstöðu að lögreglunni hafi verið óheimilt að taka skýrslu af honum sem sakborningur. Aðalsteinn, sem furðar sig á því að Landsréttur hafi ekki tekið efnislega afstöðu í máli, hyggst kæra þetta áfram til Hæstaréttar.
Eins og staðan er í dag á að yfirheyra hann, Þórð Snæ Júlíusson og Arnar Ingólfsson á Kjarnanum sem og Þóru Arnórsdóttur á RÚV vegna meintra brota tengd innbrotum í síma Páls Steingrímssonar, eins meðlima skæruliðasveitar Samherja. Skæruliðasveitin ræddi saman um hvernig snúa mætti við umræðu um Samherja í kjölfar meintrar mútustarfsemi í Namibíu.
Þórður Snær furðar sig á þessu máli á Twitter:
„Jæja, þá á ég að fara í yfirheyrslu sem sakborningur fyrir glæp sem enginn kærði, ekkert liggur fyrir um að hafi verið framinn og ég hafði ekki hugmyndaflug til að ímynda mér fyrr en ég las um í glórulausri greinargerð staðgengils lögreglustjórans. Hresst,“ segir hann og bætir við:
„Einsdæmin í þessum farsa eru að verða ansi mörg. Aldrei áður hefur jafn miklu púðri verið eytt í kæru á símastuldri sem í ofanálag einhver er búinn að játa á sig.“
Beinir hann svo orðum sínum að lögreglunni sem birti í gær tilkynningu um niðurstöðu Landsréttar, en það er mjög óvenjulegt að lögregla geri slíkt um mál sem hún hefur til rannsóknar. „Og ég man ekki til þess að lögregla sé að birta stærilætisfréttir um niðurstöðu dómstóla um réttmæti rannsókna.“