Til skoðunar að koma fyrir leikskóla á Hagatorgi fyrir 60 börn – „Vond hugmynd,“ segir Egill

Svo gæti farið að leikskóli muni rísa á Hagatorgi gegnt Hótel Sögu í vesturbæ Reykjavíkur. Starfshópurinn „Brúum bilið á meðan við brúum bilið“ hefur verið að störfum að undanförnu og hefur greinargerð hópsins nú verið kynnt í borgarkerfinu.

Morgunblaðið fjallar um málið í dag.

Í greinargerðinni eru lagðar til nokkrar staðsetningar fyrir nýjan leikskóla í Reykjavík. Um er að ræða færanlegar einingar sem verða víkjandi fyrir annarri starfsemi eða framtíðaruppbyggingu á lóðunum. Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að meðal mögulegra staðsetninga fyrir húsnæðið sé Hagatorg.

Gert er ráð fyrir að um 60 börn geti verið í umræddum leikskóla á Hagatorgi á hverjum tíma. Bent er á að skoða þurfi umferð og aðkomu foreldra og leikskólabarna að torginu sérstaklega, en ekki verður séð hvernig hægt yrði að koma leikskóla fyrir á torginu miðað við núgildandi skipulag.

Fjörugar umræður fara nú fram um málið í Facebook-hópi íbúa í Vesturbænum og ljóst að ekki eru allir hrifnir af hugmyndinni.

„Hvaða grín er þetta?“ spyr einn íbúi á meðan annar segir að allt of mikill hávaði frá bílaumferð sé á svæðinu. Langflestir eru þeirrar skoðunar að hugmyndin sé í besta falli hlægileg. „Þetta er alveg skelfileg hugmynd,“ segir einn.

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason tekur undir þetta og segir einfaldega: „Vond hugmynd“. Þegar Mörður Árnason spyr hann hvers vegna segir Egill: „Þarna á torginu ætti að vera huggulegur almenningsgarður. Svo þarf að drífa í að fjarlægja hina ömurlegu beinsínstöð.“