Ellefu eru nú á sjúkrahúsi með COVID-19 hér á landi og tveir á gjörgæslu, en alls greindust 36 smit hér á landi í gær. Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og höfundur bókarinnar Vörn gegn veiru, segir að tíðinda gæti verið að vænta á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Frá þessu greinir Björn Ingi á Facebook-síðu sinni þar sem hann deilir frétt Viljans. Í fréttinni kemur fram að vaxandi líkur séu á að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggi til hertar samkomutakmarkanir hérlendis. Þó er ekki talið líklegt að hann tilkynni hertar aðgerðir í dag, að því er segir í frétt Viljans.
Þórólfur er sagður hafa fundað með viðbragðsstjórn Landspítalans í gær vegna fjölgunar sjúklinga með COVID-19. Álagið á spítalanum er mikið enda enn töluverður fjöldi starfsmanna í einangrun og í sóttkví.
„Samkvæmt heimildum Viljans er aukning alvarlegra veikinda mikið áhyggjuefni sóttvarnayfirvalda sem og dreifing veirunnar um land allt. Ný smit virðast lítt eða ekkert berast inn til landsins eftir að krafan um tvöfalda skimun og sóttkví þess á milli var sett, en nýgengið eykst þó dag frá degi,“ segir í frétt Viljans sem má lesa í heild sinni hér.
Nú er hálfur mánuður frá því sóttvarnalæknir sagðist íhuga alvarlega að herða á samkomutakmörkunum hér innanlands vegna...
Posted by Björn Ingi Hrafnsson on Fimmtudagur, 1. október 2020