Þýskur ferðamaður fúll að fá ekki að skoða gosið – „Ég veit að ég myndi ekki týnast“

Christian Hennek, þýskur ferða­maður, sem kom hingað til lands áður en eld­gosið í Meradölum hófst kom að tómum kofanum í gær þegar hann hugðist skoða gosið.

Fjölda fólks sem gerði sér ferð að gos­stöðvunum í Mera­dölum síðustu daga hefur verið vísað frá vegna lokunar sökum veðurs. Fjallað er um málið í Fréttablaðinu í dag og meðal annars rætt við Christian sem var fúll yfir því að fá ekki að skoða gosið.

Veður á svæðinu hefur ekki verið gott undanfarna daga og var til dæmis svartaþoka í gærkvöldi. Borið hefur á því að fólk hafi farið illa búið á gosstöðvarnar og eru dæmi um að börn hafi jafnvel verið örmagna með foreldrum sínum.

Í samtali við Fréttablaðið segir þýski ferðamaðurinn Christian að eldgos sé einstakur náttúruviðburður sem hann langi gjarnan að sjá. Hann var þó svekktur, skiljanlega kannski, yfir því að fá ekki að skoða gosið í gær.

„Þegar ég kom til Ís­lands þá var ekkert eld­gos, þannig að ég tel mig vera smá heppinn. Eld­gosið er sem betur fer ekki hættu­legt fyrir Ís­lendinga, en þetta er ein­stakur náttúru­við­burður,“ segir Christian.

Hann segist vonast til þess að sjá eld­gosið áður en hann fer heim til Þýska­lands.

„Lög­reglan sagði við mig að vegna veðursins þá væri lokað á gossvæðið, þannig ég fæ ekki að sjá eld­gosið í dag. Ég er smá fúll yfir þessu því ég veit að ég myndi ekki týnast í fjöllunum. Ég myndi geta þetta,“ segir Christian.

Fréttablaðið ræddi einnig við Daníel Frey Ólafsson hjá lögreglunni á Suðurnesjum en hann hefur staðið vaktina á Suðurstrandarvegi. „Staðan er búin að vera góð. Það er fullt af fólki að koma og allir sem ætla upp að gos­stöðvum eru beðnir um að snúið við,“ segir hann og bætir við að sumir ferða­langar séu ó­sáttir við lokunina en enginn hafi neitað að fylgja fyrir­mælum lög­reglu.